Sextán manna úrslit Síminn Invitational í netskák halda áfram í kvöld. Viðureignin hefst kl. 19 eða fljótlega að loknum úrslitaleik EM í handbolta.

Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Í fyrri viðureign sunnudagskvöldsins mætast stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og stórmeistari kvenna Lenka Ptácníková. Í þeirri seinni mætast stórmeistarinn Jóhann Hjartarson og alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson.

Skákskýringar á sunnudaginn verða í umsjón Ingvars Þór Jóhannessonar og Hilmis Freys Heimissonar.

Viðureignirnar eru á Lengjunni.

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 200.000 kr
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -