Íslenska unglingalandsliðið tapaði stórt 0-4 í fyrstu umferð ólympíuskákmóts 16 ára og yngri sem hófst í dag í Konya í Tyrklandi.
Ofurefli var við að etja en serbneska liðið er það níunda sterkasta á pappírnum. Tvær umferðir á morgun. Þær hefjast kl. 7 og 14. Í þeirri fyrri mætir íslenska liðið sveit Mexíkóa.
Keppendur: Vignir Vatnar Stefánsson, Stephan Briem, Birkir Ísak Jóhannsson, Arnar Milutin Heiðarsson og Batel Goitom Haile. Liðsstjóri er Helgi Ólafsson.
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results
- Beinar útsendingar hefjast almennt kl. 12.
- Auglýsing -
















