Henrik að tafli í Bled. Mynd: Heimasíða mótsins.

Stórmeistarinn, Henrik Danielsen (2504), gerði jafntefli við georíska stórmeistarann Zurab Sturua (2529) í sjöundu umferð heimsmeistaramóts 50 ára og eldri í Bled í Slóveníu. Henrik er í 3.-5. sæti með 5½ vinning.

Áttunda umferð fer fram í dag og þá teflir Henrik við armenska Huginskappann Karen Movsziszian (2513).

106 keppendur frá 41 landi tekur þátt í flokki Henriks. Þar á meðal eru 10 stórmeistarar. Henrik er fjórði í stigaröð keppenda.

- Auglýsing -