Átta manna úrslit á Síminn Invitational í netskák hófust síðastliðið sunnudagskvöld þegar tvær viðureignir fóru fram. Alþjóðlegi meistarinn og landsliðsmaðurinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson varð að lúta í dúk gegn FIDE-meistaranumn Jóni Kristni Þorgeirssyni. Jón vann góðan og nokkuð öruggan sigur en seinna einvígið á milli Björns Þorfinnssonar og Símons Þórhallssonar varð æsispennandi og fór alla leið í bráðabanaskák þar sem Björn hafði betur.

Jón Kristinn komst í 3-0 áður en Sasha beit frá sér og minnkaði muninn í 3-1. Nær komst Aleksandr ekki og Jón Kristinn tók þráskák með unnið tafl sem dugði í 3,5-1,5 sigur.

Björn virtist ætla að ná svipað góðum sigri, komst í 2-0 og 3-1 en missti þráðinn og Símon náði að jafna 3-3 á ótrúlegan hátt eftir að Björn missti algjörlega einbeitinguna í sjöttu skákinni. Í bráðabananum hafði Björn betur og 4-3 sigur niðurstaðan.

Skákskýringar voru í umsjón Ingvars Þórs og Hilmis Freys og var nokkur galsi í þeim félögum eins og sjá má í samantekt Tómasar Tandra….

Útsendinguna er einnig hægt að nálgast í heild sinni (hér að neðan):

Björn og Jón Kristinn eru því komnir í undanúrslit þar sem þeir munu svo mætast. Sunnudagskvöldið 1. mars klárast 8-manna úrslit þegar Vignir mætir Degi og Ingvar Þór mætir Bárði og mætast sigurvegararnir í þeim viðureignum svo í undanúrslitum.

Halldór Ingi Kárason, Unnar Ingvarsson, Brynjar Bjarkason, Aron d og Halldór Brynjar Halldórsson eru efstir í Draumaliðsdeildinni.

Staðan í Draumaliðsdeildinni 

Almennt um Síminn Invitational:

Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport. Aðrir styrktaraðilar eru Collab, Ljósleiðarinnn og Lengjan.

Hægt er að fylgjast með á Sjónvarpi Símans eða á YouTube rás RÍSÍ eða Twitch Rási RÍSÍ

Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Verði jafnt verður teflt til þrautar. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

Verðlaun í aðalkeppninni

  1. 200.000 kr
  2. 100.000 kr.
  3.   25.000 kr
  4.   25.000 kr.
- Auglýsing -