Vesturlandsmótið í skólaskák fer fram laugardaginn 21. mars í Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

Mótið hefst kl. 13:00 og teflt er í þremur einstaklingsflokkum:

1.-4. bekkur, 5.-7. bekkur og 8.-10. bekkur.

Tefldar verða 7 umferðir og umhugsunartími verður 5 mín + 2 sek á hverja skák.
Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á fyrirkomulagi.

Reiknað er með að mótshaldið taki um 2 klst.

Mótið er opið fyrir alla grunnskólanemendur á Vesturlandi

Skilyrði fyrir þátttöku er að keppendur hafi lært grunnatriði skákarinnar.

Verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin í hverjum flokki.

Sigurvegari hvers flokks fær keppnisrétt á Landsmótinu í skólaskák sem fram fer í Ólafsvík 2.-3. maí.

Skráningarfrestur er til kl. 16:00, föstudaginn, 20. mars.

Það er Taflfélag Snæfellsbæjar sem heldur mótið.

- Auglýsing -