Stúlknaskákmót, Harpa blitz for girls, fer fram í Hörpu sunnudaginn 29. mars kl. 10:00
Tefldar verða 7 umferðir með tímamörkunum 4+2.
Stefnt er að því að mótið verði flokkaskipt eftir aldri.
Mótsnefnd áskilur sér rétt til þess að hagræða fyrirkomulaginu eftir fjölda keppenda.
Veitt verða verðlaun í aldursflokkunum 9 ára og yngri og 16 ára og yngri.

Teflt verður við frábærar aðstæður í Hörpu, á sama stað og Reykjavik Open fer fram.
- Auglýsing -

















