Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið hófst í Hörpu í dag þegar mótið var sett og fyrsta umferð tefld. Enn einu sinni fáum við metþátttöku en 422 skákmenn eru skráðir til leiks að þessu sinni. Vignir Vatnar hóf mótið á góðum sigri og Áskell Örn Kárason náði þéttu jafntefli gegn sterkum stórmeistara frá Kazakhstan. Ingvar Wu Skarphéðinsson náði einnig góðu jafntefli gegn sterkum skákmanni og Mikael Bjarki Heiðarsson vann góðan sigur gegn stigahærri andstæðingi.
Jóhanna Björg Jóhannsdóttir forseti Skáksambandsins ávarpaði gesti og að því loknu lék Alexandra Briem fulltrúi Reykjavíkurborgar fyrsta leiknum fyrir Íranann Amin Tabatabaei, stigahæsta skákmann mótsins.

Heilt yfir var lítið um óvænt úrslit, stigalægri lagði ekki stigahærri fyrr en á 75. borði en nokkrir stórmeistarar urðu að gefa eftir jafntefli. Nánar um úrslit á chess-results.
Tvöföld umferð er tefld á fimmtudeginum á morgun.
Svipmyndir úr 1. umferð
View this post on Instagram
Hægt er að nálgast skákir á:
Streymarar:
- Hannah Sayce
- Tamara Kadovic
- Matthew Perchard (rás og skýringar hjá Lulurobs)
- Simon Williams (óvíst hvort verði)
- Keti Tsatsalashvili
Efni frá mótshöldurum:
- Heimasíða mótsins
- Instagram Skáksambandsins
- TikTok Skáksambandsins
- Twitter/X Reykjavik Open
- Facebook síða mótsins
Annað:













