Úzbekinn ungi Javokhir Sindarov lagði í dag Bandaríkjamanninn Fabiano Caruana að velli og hefur tekið forystu á Áskorendamótinu. Báðir höfðu þeir unnið tvær skákir til þessa og er Sindarov því með 3,5 vinnig eftir 4 skákir. Í kvennaflokki hafa tvær 2,5 vinning eða +1 og Zhu Jiner vann loks skák eftir að hafa misst niður vænlegar stöður ítrekað til þessa.
Hér fyrir neðan förum við yfir skákir dagsins og helstu atvik.
Opinn flokkur
Skemmtilegur dagur með miklum sviptingum.
Sindarov – Caruana
Framganga Sindarov er eftirtektarverð. Hann virðist algjörlega óttalaus á stóra sviðinu og leggur mun reyndari andstæðing sinn að velli með mjög vandaðri taflmennsku. Líklegast var uppstilling Caruana of áhættusöm og hann missti öll tök á stöðunni í miðtaflinu. Sindarov refsaði og hefur nú tekið vinningsforskot á mótinu!
[Event „FIDE Candidates Tournament 2026“]
[Site „https://lichess.org/broadcast/fide-candidates-2026-open/round-4/97di6JjX/Jzyakrf4“]
[Date „2026.03.21“]
[Round „4.1“]
[White „Sindarov, Javokhir“]
[Black „Caruana, Fabiano“]
[Result „1-0“]
[WhiteElo „2745“]
[WhiteTitle „GM“]
[WhiteFideId „14205483“]
[BlackElo „2795“]
[BlackTitle „GM“]
[BlackFideId „2020009“]
[TimeControl „120 minutes for the first 40 moves, followed by 30 minutes for the rest of the game with an increment of 30 seconds per move starting from move 41.“]
[Variant „Standard“]
[ECO „D26“]
[Opening „Queen’s Gambit Accepted: Classical Defense, Steinitz Variation, Development Variation“]
[UTCDate „2026.03.21“]
[UTCTime „21:16:53“]
[BroadcastName „FIDE Candidates 2026: Open“]
[BroadcastURL „https://lichess.org/broadcast/fide-candidates-2026-open/round-4/97di6JjX“]
[GameURL „https://lichess.org/broadcast/fide-candidates-2026-open/round-4/97di6JjX/Jzyakrf4“]
1. d4 { [%eval 0.15] [%clk 1:59:57] } 1… d5 { [%eval 0.27] [%clk 1:59:54] } 2. c4 { [%eval 0.22] [%clk 1:59:50] } 2… e6 { [%eval 0.17] [%clk 1:59:50] } 3. Nf3 { [%eval 0.11] [%clk 1:59:32] } 3… dxc4 { [%eval 0.18] [%clk 1:59:38] } 4. e3 { [%eval 0.14] [%clk 1:59:16] } 4… Nf6 { [%eval 0.19] [%clk 1:59:27] } 5. Bxc4 { [%eval 0.15] [%clk 1:59:07] } 5… c5 { [%eval 0.22] [%clk 1:59:19] } 6. O-O { [%eval 0.21] [%clk 1:58:36] } 6… Nc6 { [%eval 0.25] [%clk 1:59:13] } 7. Qe2 { [%eval 0.16] [%clk 1:57:17] } 7… a6 { [%eval 0.13] [%clk 1:58:39] } 8. Nc3 { [%eval 0.26] [%clk 1:56:21] } 8… b5 { [%eval 0.43] [%clk 1:57:13] } 9. Bd3 { [%eval 0.22] [%clk 1:55:52] } 9… Bb7 { [%eval 0.33] [%clk 1:45:37] } 10. a4 { [%eval 0.42] [%clk 1:54:58] } 10… b4 { [%eval 0.34] [%clk 1:35:50] } 11. Ne4 { [%eval 0.41] [%clk 1:54:43] } 11… Na5 { [%eval 0.54] [%clk 1:35:11] } 12. Nxf6+ { [%eval 0.65] [%clk 1:54:24] } 12… gxf6 { [%eval 0.53] [%clk 1:27:00] } 13. dxc5 { [%eval 0.5] [%clk 1:54:17] } 13… Nb3 { [%eval 0.65] [%clk 1:09:18] } 14. c6 { [%eval 0.46] [%clk 1:53:07] } 14… Bxc6 { [%eval 0.33] [%clk 1:07:23] } 15. Nd4 { [%eval 0.33] [%clk 1:53:01] } 15… Nxd4 { [%eval 0.44] [%clk 0:51:52] } 16. exd4 { [%eval 0.67] [%clk 1:52:56] } 16… Rg8 { [%eval 0.65] [%clk 0:51:39] } 17. g3 { [%eval 0.43] [%clk 1:26:51] } 17… f5?! { [%eval 1.04] } { Inaccuracy. Qxd4 was best. } { [%clk 0:34:28] } 18. Bc4 { [%eval 0.87] [%clk 1:15:51] } 18… Rg4 { [%eval 1.27] [%clk 0:16:27] } 19. Be3 { [%eval 1.23] [%clk 1:11:28] } 19… Bd5 { [%eval 1.6] [%clk 0:11:42] } 20. Rac1 { [%eval 1.54] [%clk 1:06:41] } 20… Be7 { [%eval 1.54] [%clk 0:06:25] } 21. Bxa6 { [%eval 1.22] [%clk 1:04:55] } 21… Kf8 { [%eval 1.27] [%clk 0:06:21] } 22. Bb5 { [%eval 1.12] [%clk 1:01:45] } 22… Bf6?! { [%eval 1.8] } { Inaccuracy. Kg7 was best. } { [%clk 0:06:10] } 23. Rfd1 { [%eval 1.67] [%clk 0:56:42] } 23… Kg7 { [%eval 1.92] [%clk 0:05:50] } 24. Bc6 { [%eval 1.74] [%clk 0:55:05] } 24… Ra5 { [%eval 2.19] [%clk 0:03:55] } 25. Bxd5 { [%eval 2.38] [%clk 0:52:21] } 25… Rxd5 { [%eval 2.1] [%clk 0:03:53] } 26. Rc5 { [%eval 2.0] [%clk 0:50:29] } 26… Rd7 { [%eval 2.56] [%clk 0:03:49] } 27. d5 { [%eval 2.43] [%clk 0:47:39] } 27… exd5?! { [%eval 3.25] } { Inaccuracy. Re4 was best. } { [%clk 0:03:44] } 28. Qf3 { [%eval 2.87] [%clk 0:45:39] } 28… Bxb2?! { [%eval 3.88] } { Inaccuracy. d4 was best. } { [%clk 0:03:02] } 29. Rcxd5 { [%eval 4.13] [%clk 0:45:25] } 29… Rxd5 { [%eval 3.87] [%clk 0:02:56] } 30. Rxd5 { [%eval 3.98] [%clk 0:45:19] } 30… Qe8 { [%eval 4.09] [%clk 0:02:01] } 31. Rxf5 { [%eval 3.78] [%clk 0:45:11] } 31… Rg6?! { [%eval 5.27] } { Inaccuracy. Re4 was best. } { [%clk 0:01:59] } 32. h4 { [%eval 4.84] [%clk 0:45:00] } 32… Bc3 { [%eval 5.12] [%clk 0:01:09] } 33. h5 { [%eval 4.91] [%clk 0:44:37] } 33… Ra6 { [%eval 6.05] [%clk 0:01:03] } 34. Qg4+ { [%eval 6.71] [%clk 0:42:45] } 34… Kh8 { [%eval 6.64] [%clk 0:01:01] } 35. Bd4+ { [%eval 6.01] [%clk 0:42:13] } 35… f6?! { [%eval 8.13] } { Inaccuracy. Bxd4 was best. } { [%clk 0:00:48] } 36. Rc5 { [%eval 7.73] [%clk 0:42:02] } 1-0
Wei Yi – Nakamura
Nakamura verður að fara að safna vinningum en hann missti af góðu færi í umferð dagsins. Endataflið var mjög vænlegt á Nakamura en hann missti af leiðum til að gera sér mat úr því. Eitt dæmi er hér…
Hér hefði 45…Kg5 haldið mjög vænlegu tafli. Peðin eru að koma, f5-f4 er óþægilegt með hvíta kónginn í prísund og möguleikinn á að koma svarta kóngnum til g3 vofir yfir, taflið líklegast tapað. Þessi í stað leyfði Nakamura Kínverjanum að ná vopnum sínum og halda jafnteflinu. Ef menn ætla að verða heimsmeistarar í skák verða menn að klára svona sénsa! Mönnum gæti jafnvel dottið í hug einn Norðmann sem hefði líklegast nýtt þennan séns á stóra sviðinu!
Bluebaum – Praggnanandhaa
Bluebaum með hvítu mennina í þriðja skiptið á mótinu og einhvern veginn virðist hann alltaf vera að tefla sömu skákina. Ekkert gerist, vissulega er hann aldrei í taphættu en setur heldur enga pressu á andstæðingana. Traust byrjun hjá Bluebaum en enn og aftur er hann ekki líklegur til afreka.
Kvennaflokkur:
Tvö úrslit komu í hús í kvennaflokki.
Desmukh – Zhu Jiner
Zhu Jiner náði að svara fyrir tapið í gær og pakkaði Desmukh saman með svörtu mönnunum. Þetta kemur henni aftur í 50% og aðeins hálfum vinningi á eftir efstu skákkonunum. Jiner er líkleg að mati ritstjórnar!
Anna Muzychuk – Lagno
Lagno vann í gær en varð að lúta í dúk í dag, dettur aftur niður í 50% en Muzychuk stekkur í efsta sætið. Anna fórnaði manni skemmtilega og var klár í baráttu við þá rússnesku! Lagno leikur sig svo nánast í mát í lokinn og gefst upp.
Hinar skákirnar í kvennaflokki enduðu með jafntefli.
Staðan:
Standings | After Round 4 | FIDE Candidates & Women’s Candidates 2026
🇺🇿 Javokhir Sindarov takes a full point lead in the FIDE Candidates, while 🇰🇿 Bibisara Assaubayeva and 🇺🇦 Anna Muzychuk share the lead in the FIDE Women’s Candidates.#FIDECandidates #FIDEWomensCandidates… pic.twitter.com/q8jpHJ6h8N
— International Chess Federation (@FIDE_chess) April 1, 2026
Tenglar:
Um mótið:
Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!
Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano Caruana, Hikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei Yi, Praggnanandhaa R, Javokhir Sindarov, Andrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.
Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu Jiner, Tan Zhongyi, Aleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju Wenjun. Anna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

















