Úzbekinn Javokhir Sindarov hefur náð eins og hálfs vinnings forskoti á Áskorendamótinu en hann vann enn einn sigur í dag og það með svörtu gegn Kínverjanum Wei Yi. Caruana tókst ekki að leggja Esipenko að velli og því breikkaði bilið á toppnum. Í kvennaflokki er Muzychuk komin með vinningsorskot þar sem hún lagði Jiner að velli auk þess sem Lagno tapaði fyrir Vaishali en þær voru efstar þrjár fyrir umferðina.

Kíkjum fyrst á helstu tíðini í opna flokkinn.

Wei Yi – Sindarov

Sindarov er eitraður með svörtu það sem af er móti og með +5 nú þegar er orðið ansi erfitt að sjá annan en Caruana eiga raunhæfa möguleika á að ná í skottið á Úzbekanum eitraða sem virðist hafa sjálfstraustið gjörsamlega í botni.

Wei Yi tefldi einhverskonar Vínartafl með hvítu og miðtaflið hafði ákveðið dýnamískt ójafnvægi…eitthvað sem virðist vera það sem Sindarov leitast eftir og hefur verið að komast manna best út úr slíkum stöðum. Í dag fór Wei Yi einfaldlega of illa með tíma sinn og fór of mikill tími í lokin að leysa vandamál í stöðunni og Sindarov var allt í einu kominn með unnið endatafl.

 

Caruana – Esipenko

Fabiano náði ekki að leggja Esipenko að velli. Caruna hafði um tíma umframpeð en b-peð svarts hélt tveimur peðum hvíts á drottningarvæng algörlega í skefjum og svarta staðan nægjanlega virk til að halda velli. Klárlega skák sem Caruana hefði fyrirfram hakað við að vilja vinna en náði því ekki í þetta skiptið.

Öðrum skákum í opnum flokki lauk með jafntefli Hikaru endurtók stöðuna gegn Praggnanandhaa og báðir þurfa ótrúlegan seinni hluta til að eiga sénsa. Giri og Bluebaum tefldu eina leiðinlegustu skák í sögu kandídatamóta. Eftir 9 leiki kom leiðinlegur strúktúr, 30 leikjum síðar var skipt upp á hvítreitabiskupum og svo fjórutíu leikjum síðar hafði ekkert gerst!

Kvennaflokkur:

Zhu Jiner – Muzychuk

Zhu Jiner ætlar að eiga hálfgert rússíbanamót, nýbúin að vinna tvær í röð en tapar nú mikilvægri skák gegn Muzychuk sem einfaldlega yfirspilaði hana í miðtaflinu með svörtu.

Muzychuk er nú ein með +2 en fimm skákkonur hafa helmingsskor vinningi á eftir.

Staðan:

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -