Íslendingar tefldu víða í dag, laugardag á ýmsum mótum og ætlum við að stikla á stóru hér. Ætlunin hér er að renna aðeins yfir úrslitin og hvar verið er að tefla.
Alicante, Spáni
Taflmennska hélt áfram á opna alþjóðlega mótinu í Alicante þar sem þau Guðrún Fanney Briem og Halldór Halldórsson taka þátt. Guðrún Fanney tapaði sinni skák gegn Stephan Bukharkov (2196) en Halldór tók hjásetu. Guðrún hefur 2,5 vinning en Halldór 1,5 vinning. Í sjöundu umferð mætir Guðrún lettneskri stelpu með landsliðsreynslu en Halldór mætir Norðmanni. Tvöföld umferð er á morgun og lýkur mótinu á mánudaginn.
Grenke Open, Þýskalandi
Samhliða Grenke Freestyle mótinu sem Magnus Carlsen og félagar taka þátt í er teflt algjörlega massíft opið mótið, Grenke A-Open en þar tekur Birkir Hallmundarson (1976) þátt ásamt 997 öðrum keppendum. Alvöru stærð þarna á ferðinni! Birkir er númer 876 í styrkleikaröðinni! Birkir hefur 1,5 vinning að loknum fimm umferðum, hefur einungis teflt við skákmenn um og yfir 2100 elóstigum og má þokkalega vel við una.
Í B-mótinu sem er U2000 eru 1531 skákmaður skráður til leiks! Þar er númer 56 í styrkleikaröðinni Vilhjálmur Pálmason (1935). Vilhjálmur byrjaði á að gera jafntefli við Dr. Klaus Flemming í fyrstu umferðinni en síðan þá hefur hann unnið fjórar skákir í röð og blandað sér í toppbaráttuna.
6th 4NCL Easter Congress U2000, Englandi
Hér eru þrír Íslendingar skáðir til leiks, þeir Unnar Ingvarsson, Lárus H. Bjarnason og Erlingur Jensson. Unnar hefur 2,5 vinning að loknum 3 umferðum en Lárus og Erlingur einn vinning.
Hér er fínn peðsendataflssigur hjá Unnari sem yfirspilaði Englendinginn Ireland í enska leiknum.
Unnar átti athyglisverðan möguleika hér 22.Hxg7!? Hxg7 23.Hg1 Hg8 24.Dd2 og hvítur ætti að vinna f4 peðið og getur svo tekið skiptamuninn. Unnar lék 22.Hg4 og tefldi peðsendataflið svo af mikilli prýði.
5. Mikis Theodorakis International, Grikklandi
Hér er Sverrir Gestsson (1931) skráður til leiks á 149 manna opið mót og hefur hálfan vinning að loknum þremur umferðum.















