Hollenski stórmeistarinn Anish Giri náði loks að stöðva sigurgöngu Úzbekans Javokhir Sindarov í sjöundu umferðinni þegar hann hélt skiptum hlut. Caruana gerði einnig jafntefli þannig að eins og hálfs vinnings forskot Úzbekans á Áskorendamótinu helst í hálfleik. Í kvennaflokki er Muzychuk áfram efst en nú er það Vaishali sem er í öðru sæti eftir heppnissigur gegn Tan Zhongyi…vægast sagt!

Kíkjum fyrst á helstu tíðindi í opna flokkinn.

 Sindarov – Giri

Sindarov var vel undirbúinn eins og alla jafna. Hann fékk snemma fínasta tímaorskot en sætti sig við stöðu þar sem hann gat teflt áhættulaust til vinnings án þess að taka neina áhættu. Gallinn náttúrulega að maður eins og Giri á að halda svona stöðum í nánast hvert skipti. Sindarov reyndi að búa til ör-vandamál fyrir Giri til að glíma við en Hollendingurinn náði að leysa þau flest.

Hér gat Anish með svörtu fórnað skiptamun og jafnteflið er allt að því tryggt. 42…Hxb3 43.Rxb3 Hxb3+ 44.Kf2 en hér hefði Anish átt skemmtilega leið til að klára verkefnið endanlega.

44…Bxg4! hefði verið skemmtilegur hér. Svartur tryggir jafnteflið þar sem 45.fxg4 Hb2+ er þráskák, hvítur verður að valda hrókinn frá g1 eða g3 og þá kemur aftur skák á 2. reitaröð og sagan endurtekur sig. Þetta hefði sparað báðum 40 leiki en skákin tefldist ansi lengi í viðbót þó niðurstaðan væri alltaf ljós!

Praggnanandhaa – Caruana

Fabiano Caruana reyndi sitt besta að búa til ójafnvægi í stöðuna til að eygja möguleika á að geta teflt til vinnings á einhverjum tímapunkti. Svartur hafði góð tök á d-línunni og riddara sem leit vel út á pappír en á móti var peðastaða svarts eilítið löskuð.  Færin komu aldrei almennilega á báða bóga og jafntefli niðurstaðan.

Wei Yi náði að leggja Esipenko að velli í einu vinningsskák dagsins. Esipenko með slappa skák með hvítu. Og því er ekki að neita að hann ásamt nokkrum hefðu alveg ekki mátt læðast inn í mótið á kostnað Abdusattorov, Firouzja og Keymer sem hefði verið gaman að sjá á þessu móti!

Bluebaum og Nakamura skildu jafnir í leiðinlegri skák. Nakamura hefur mistekist að vinna eina einustu skák í fyrri hluta mótsins og líður greinilega fyrir það að hafa ekki teflt neinar alvöru skákir í alltof langan tíma.

Sindarov hefur 6 vinninga af 7 sem er +5 skor en Caruana hefur 4,5 vinning, +2 sem venjulega myndi nægja til að hafa forystu eftir fyrri hluta mótsins.

Kvennaflokkur:

Muzychuk gerði jafntefli í stuttri skák gegn Bibisara sem tryggði allavega toppsætið í hálfleik. Vaishali komst óvænt í annað sætið með kraftaverkasigri gegn Zhongyi.

Zhongyi fann 37…Ha1?? sem er sögulega lélegur afleikur á þessu stigi. Vaishali fékk unnið eftir 38.Hxf6. Ótrúlegt!

Muzychuk er enn ein efst með 4,5 vinning (+2) en Vaishali er nú ein í 2. sæti með 4 vinninga (+1). Miklar sviptingar í kvennaflokknum og erfitt að spá í spilin

Úrslit dagsins:

Frídagur er á morgun mánudag, annan í Páskum.

Staðan:

Tenglar:

Um mótið:

Kandidatamót FIDE fara fram á Kýpur, bæði í opna flokknum og kvennaflokki. Mótin eru lokastig í baráttunni um það hver fær að skora á heimsmeistarana í klassískri skák. Keppt er með átta keppendum í hvorum flokki, tvöfaldri umferð, allir við alla (round-robin). Alls eru tefldar 14 umferðir, og stendur dagskráin frá 29. mars til 15. apríl með hvíldardögum inn á milli. Bráðabanar fara fram 16. apríl ef þörf er á!

Í opna mótinu eru meðal keppenda Fabiano CaruanaHikaru Nakamura og Anish Giri ásamt mönnum á borð við Wei YiPraggnanandhaa RJavokhir SindarovAndrey Esipenko og Matthias Bluebaum, og sigurvegarinn fær réttinn til að tefla um heimsmeistaratitilinn gegn Gukesh Dommaraju síðar á árinu.

Í kvennaflokki er baráttan ekki síður hörð, með nöfnum eins og Zhu JinerTan ZhongyiAleksandra Goryachkina og Kateryna Lagno í fremstu röð, og sigurvegarinn fær að skora á heimsmeistarann Ju WenjunAnna Muzychuk kom inn í mótið sem varamaður eftir að Koneru Humpy dró sig út.

- Auglýsing -