Taflmennska hélt áfram um alla Evrópu hjá Íslendingum. Mörg mót tefldu tvöfaldar umferðir í dag en aðrar létu minna fyrir sér fara. Helst er það til tíðinda að Vilhjálmur Pálmason er í bullandi toppbaráttu á Grenke B-open ásamt Íslandsvini og Halldór Halldórsson hefur tekið skákina föstum tökum og vann báðar skákir í dag og setti sólarfríið á hilluna á meðan!
Alicante, Spáni
Kandídatameistarinn Halldór Halldórsson er að mestu að tefla sér til skemmtunar eins go sést á þéttum hjásetum í fyrstu umferðunum. Halldór lét hinsvegar ekki bjóða sér sólargrín ritstjórnar Skak.is of lengi og steig fast til jarðar í dag. Í hús kom 2 vinningar úr 2 skákum og lyfti Akureyringur sér þar með vel upp töfluna. Guðrún Fanney Briem hefur aðeins gefið eftir en hún byrjaði mótið einstaklega vel. Báðar skákir hennar töpuðust í dag.
Halldór hefur nú 3,5 vinning en Guðrún 2,5 vinning. Framundan er lokaumferðin snemma á morgun.
Grenke Open, Þýskalandi
Á aðalmótiðnu, Grenke Freestyle mótinu mættust Magnus Carlsen og Vincent Keymer í hörkuskák sem endaði með jafntefli. Á Grenke A-Open var það hinsvegar Birkir Hallmundarson (1976) sem var í hörkustuði. Eins og nefnt var í gær er þessi flokkur stuðrlaður, 997 keppendu takk fyrir!

Birkir fær áfram gott prógram og andstæðing í kringum 2100 elóstigin og í dag lagði hann tvo slíka að velli! Fyrst var það Þjóðverjinn Dr. Christian Steinwachs (2059) og svo Safkhan Shahmammadli (2102) frá Sviss.
Tvöföld umferð er á morgun og þá mætir Birkir Kerim Karakol (2138)
Í B-mótinu sem er U2000 eru 1531 skákmaður skráður til leiks og ekki er dónalegt að vera með 6,5 vinning af 7 og í skiptu þriðja sæti! Það Vilhjálmur Pálmason (1935), sem tefldi með sigursælu liði Laugalækjaskóal á árum áður en hann vann báðar sínar skákir í dag. Á morgun eru tvær skákir og líklegt er að sigur í þeim báðum dugi í efsta sætið á mótinu.
Til þess að ná því má vera að leiðin þurfi að liggja í gegnum hinn sigursæla Liu Bei (1963) sem vakti mikla athygli á Reykjavíkurskákmótinu sem er nýlokið. Liu Bei hefur 7 af 7 og er á ótrúlegri siglingu!
Vilhjálmur hefur svart gegn frönskum skákmanni Sacha Mougenot (1898) í fyrri umferð morgundagsins.
6th 4NCL Easter Congress U2000, Englandi
Tefld var tvöföld umferð hér og eru þrír íslenskir keppendur á mótinu: Unnar Ingvarsson, Lárus H. Bjarnason og Erlingur Jensson. Unnar hefur 3,5 vinning að loknum 5 umferðum, Erlingur 2,5 og Lárus 1,5.
5. Mikis Theodorakis International, Grikklandi
Sverrir Gestsson (1931) vann sína skák á þessu 149 manna opnu móti og hefur 1,5 vinning að loknum fjórum umferðum.


















