Sigursveit Lindaskóla: Liðsstjóri Birkir Ísak Jóhannsson, Birkir Hallmundarson, Sigurður Páll Guðnýjarson, Örvar Hólm Brynjarsson, Nökkvi Hólm Brynjarsson, Engilbert Viðar

Íslandsmót grunnskólasveita 8-10.bekkur fór fram þann 19.apríl í Rimaskóla.  Að þessu sinni voru skráðar 17 sveitir til leiks og tefldar voru sjö umferðir. Fyrir fram var sveit Lindaskóla í öðrum klassa og sýndi í mótinu að það var innistæða fyrir því.

Lindaskóli vann allar sínar viðureignir og endaði vel yfir næstu sveitum með 23 vinninga. Hvaleyraskóli átti einnig gott mót og endaði með 18½. Rimaskóli A-sveit endaði með 17 vinninga og náði þriðja sætinu hálfum vinningi á undan Langholtsskóla.

Einnig voru veitt önnur verðlaun í mótinu. Efsta b-sveitin var B-sveit Víðisstaðaskóla með 13½. Efsta landsbyggðarsveitin var Flúðaskóli með 13 vinninga.

🥇Lindaskóli 23

🥈Hvaleyrarskóli 18½

🥉Rimaskóli A-sveit 17

Sigursveit Lindaskóla: Liðsstjóri Birkir Ísak Jóhannsson, Sigurður Páll Guðnýjarson, Örvar Hólm Brynjarsson, Birkir Hallmundarson, Nökkvi Hólm Brynjarsson (Engilbert Viðar ekki á mynd)
Silfursveit Hvaleyrarskóla: Liðsstjóri Ægir Magnússon, Kristófer Árni Egilsson, Tristan Nash Alguno Openia, Milosz Ulfur Olszewski, Katrín Ósk Tómasdóttir
Brons sveit Rimaskóla A-sveit: Emilía Embla B. Berglindardóttir, Sigrún Tara Sigurðardóttir, Tristan Fannar Jónsson, Anh Hai Tran, Ómar Jón Hólm Kjartansson
Efsta B-sveitin B-sveit Víðistaðarskóla:Matthías Nói Gestsson, Alexander Aron Waagfjörð, Aron Logi Helgason, Úlfur Logi Arnarsson, Alexander Einar Pétursson, Viktor Trifunovic Liðsstjóri Birkir Már Viðarsson
Efsta landsbyggðasveitin sveit Flúðaskóla: Liðsstjóri Árni Þór Hilmarsson, Þorgeir Elís Elvarsson, Helgi Fannar Oddsson, Snorri Ingvarsson, Stefán Fannar Halldórsson
Lokastaðan eftir 7.umferðir

Hægt er að sjá lokastöðu mótsins á úrslitasíðunni chess-results:.

Myndir frá mótinu má sjá á flickr síðu Skáksambands Íslands. Íslandsmót grunnskólasveita (8.-10. bekkur) 2026 | Flickr

 

- Auglýsing -