Norðurlandamóti stúlkna, sem fram fór í Vestby í Noregi, lauk í gær.

Ísland átti tíu keppendur á mótinu sem tefldu í aldursskiptum flokkum.
Tefldar voru fimm umferðir með tímamörkunum 90+30.

A-flokkur (u20)

Christine Nordahl frá Noregi varð Norðurlandameistari með 4 vinninga.
Ísland átti ekki keppanda í flokknum.

B-flokkur (u16)

Guðrún Fanney Briem hlaut 3,5 vinning og endaði í 2.-4. sæti (4. sæti á stigum). Sigrún Tara Sigurðardóttir fékk 2 vinninga, Emilía Embla B. Berglindardóttir 1,5 vinning og Emilía Sigurðardóttir 0,5 vinning.
Anna Sofia Li frá Danmörku varð Norðurlandameistari með 4,5 vinning.

C-flokkur (u13)

Harpa Hrafney Karlsdóttir endaði með 3 vinninga í 6. sæti. Harpa átti mjög gott mót og var í toppbaráttunni fram eftir mótinu. Hún átti möguleika á verðlaunasæti með sigri í lokaumferðinni.
Halldóra Jónsdóttir og Katrín Ósk Tómasdóttir fengu 2,5 vinning, Emilía Klara Tómasdóttir 1,5 vinning og Miroslava Skibina og Likhithasri Sathiyaraj fengu 1 vinning.

Rúmur og góður skáksalur

Mótshaldið var mjög vel heppnað hjá Norðmönnum. Aðstaða fyrir keppendur í skáksal mjög góð og nægt pláss fyrir þjálfara, foreldra og annað fylgdarfólk.

_D0A9457

Tómas Tandri Jóhannsson tók myndir og myndbönd sem fylgja fréttinni og fær hann kærar þakkir fyrir það.


Ísland átti tíu keppendur á Norðurlandamóti stúlkna í skák sem fór fram í Vestby í Noregi 24.-26. apríl.

Teflt var í þremur flokkum á mótinu, A-flokki (u20), B-flokki (u16) og C-flokki (u13). Ísland átti einungis fulltrúa í B- og C-flokki.

B-flokkur (16 ára og yngri)
Guðrún Fanney Briem (2032)
Emilía Embla B. Berglindardóttir (1622)
Sigrún Tara Sigurðardóttir (1483)
Emilía Sigurðardóttir (1464)

C-flokkur (13 ára og yngri)
Harpa Hrafney Karlsdóttir (1585)
Halldóra Jónsdóttir (1568)
Katrín Ósk Tómasdóttir (1445)
Miroslava Skibina (1443)
Emilía Klara Tómasdóttir (0)
Likhitha Sri Sathiyaraj (0)

Þjálfari hópsins var Björn Ívar Karlsson

Tefldar voru fimm umferðir með umhugsunartímanum 90+30.

Dagskrá mótsins (að íslenskum tíma):

Föstudagur 24. apríl
16:30 – 1. umferð

Laugardagur 25. apríl
08:00 – 2. umferð
13:00 – 3. umferð

Sunnudagur 26. apríl
07:00 – 4. umferð
12:00 – 5. umferð

- Auglýsing -