Arjun Erigaisi. Mynd: Lennart Ootes/Tata Steel.

Fimmta umferð á TePe Sigeman-mótinu fór fram í Malmö í dag. Indverjinn Arjun Erigaisi lagði þá Carlsen-banann Jorden van Forrest að velli og náði þarmeð hinum unga Erdogmus að vinningum en hann gerði jafntefli við Andy Woodward. Carlsen náði að minnka muninn á toppnum en hann lagði Zhu Jiner að velli í hörkuspennandi skák.

Erigaisi náði að knésetja Forrest en framrás e-peðs Hollendingsins var ekki góð, reyndist það banabitinn en e-peð Indverjans varð of gott taktískt vopn á 7. reitaröðinni.

Sigur Carlsen var þyrnum stráður, hann fékk ekkert sérstaka stöðu og var með aðeins verra tafl snemma miðtafls. Miklar flækjur og útreikningar, Carlsen þurfti að finna góða leiki og Jiner var í sókn, menn hennar nálægt kóngi Carlsen. En eins og menn segja á Engilsaxneskunni „when you come for the king you better not miss!“ og Jiner hitti ekki. Varnir Carlsen héldu og hann náði vinningnum.

Grandelius komst loks á blað, drap taflið með hvítu gegn Abdusattorov og jafntefli, eins og hjá Woodward og Erdogmus þrátt fyrir að Bandaríkjamaðurinn hafi reynt að kreysta eitthvað fram í dauðu drottningarendtafli.

Erdogmus nú efstur með 3,5 vinninga ásamt Erigaisi en Abdusattorov og Carlsen hafa svo 3 vinninga. Sjötta umferð verður tefld á morgun en skákir byrja 13:00 að íslenskum tíma…fín upphitun fyrir Íslandsmóts-skákir sem fyrr!

Um mótið:

Tepe Sigeman er sterkt mót sem haldið er í Svíþjóð og hefur vakið athygli fyrir skemmtilegan keppendalista í gegnum tíðina. Sérstaka athygli vakti þátttaka Magnus Carlsen í ár. Óstaðfestar heimildir herma að Carlsen hafi tekið þátt þar sem golfvellir í nánd við mótsstað eru með besta móti!

Umhugsunartíminn er 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum eru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.

Keppendahópurinn er glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mætast reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.

- Auglýsing -