Sjötta umferð Íslandsmótsins í skák var tefldi í dag í Miðgarði í Garðabæ. Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson mætti þá „oddafisknum“ Hilmi Freyr Heimissyni sem var efstur með fullt hús fyrir umferðina. Vignir mætti feykilega vel undirbúinn til leiks og skellti sjaldgæfum leik á Hilmi í byrjuninni sem olli honum vandræðum og auk þess mikillar tímanotkunar. Lagði þetta grunninn að sigri Vignis sem kláraði dæmið í miðtaflinu. Hannes Hlífar Stefánsson lagði Örn Leó og er hálfum vinningi frá efstu mönnum. Guðmundur Kjartansson og Dagur Ragnarsson misstu af góðu færi til komast í grennd við toppinn en náðu ekki að vinna sínar skákir.

Rennum yfir gang mála í þessari umferð:

GM Vignir Vatnar Stefánsson (4) – IM Hilmir Freyr Heimisson (5)

Toppuppgjörið sem allir höfðu beðið eftir. Vignir kom Hilmi greinilega á óvart í byrjuninni.

8.c5!? týpískur „einnar skákar undirbúningur“ hvöss hugmynd sem er tefld til að koma andstæðingnum á óvart. Teoríuhestar eins og van Foreest og Abdusattorov hafa beitt þessum leik með góðum árangri. Hilmir var greinilega ekki klár í bátana gegn þessari línu og tók sér strax hálftíma í 8. leik til að leika 8…Bb7 sem Vignir svaraði að bragði með 9.Da4+ og nú tók Hilmir sér gott kortér í að leika 9…c6 og hvítur er strax kominn með þægilegra tafl. Abdusattorov hafði áður unnið gegn 9…Bc6 en besti leikurinn er 9…Kd8 skv. tölvunum, leikur sem ólíklegt er að mennskir finni yfir borðinu.

Staðan skömmu eftir byrjunina, Vignir með gott tímaforskot

Segja má að þessi undirbúningur hafi lagt grunninn að góðum sigri. Hilmir lenti í vandræðum með hvítreitabiskup sinn og náði aldrei að losa almennilega um stöðu sína auk tímapressunnar.

30.Dd8+ var lokahnykkurinn eftir 30…He8 kom 31.Dh4 og riddaragaffli hótað á d6 auk þess sem riddarinn á h5 er ofan í, hvítur vinnur lið.

Vignir nær þar með Hilmi að vinningum og gætu orðið spennandi lokaumferðir!

GM Guðmundur Kjartansson (3½) – IM Björn Þorfinnsson (2½)

Hér var á ferð kjörið tækifæri fyrir Guðmund að ná í skottið á efstu mönnum. Lengi tafls virtist ekki stefna í neitt sérstakt. Björn tefldi traust drottningarbragð og hróksendtaflið virtist stefna í jafntefli. Áfram tefldu þeir þó og þrautseigja Guðmundar virtist ætla að bera ávöxt.

50…Hxb6? hjá Birni hér hartnær tapleikur. Svartur varð að „redúsera“ peðin með 50…f5+! og ef svartur nær að taka á g4 fórnar hann hróknum á h-peðið og a-peðið tryggir jafntefli. Nú munaði um auka f-peðin inni á borðinu sem voru hvítum í hag.

Hér lék Gummi skákinni niður í jafntefli með 59.f6? Þess í stað var 59.Kf8! vinningsleikurinn. Hvíti kóngurinn nær að bæta stöðu sína með tempóvinningi á hrókinn. Auðvelt er þó að sitja á hliðarlínunni og sjá „sannleikann“ í stöðunni…hvítur þarf að finna nokkrar góðar leiðir til að klára dæmið.

Svekkjandi engu að síður fyrir Guðmund sem hefði getað jafnað Hannes að vinningum í 3. sæti en þeir mætast einmitt í næstu umferð!

FM Örn Leó Jóhannsson (1) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (3½)

Örn Leó beitti lokaðri sikileyjarvörn gegn Hannesi en svartur fékk snemma mjög þægilegt tafl.

Taktískar aðgerðir sem Örn hóf með 22.e5? voru of dýru verði keyptar. 22…Bxg2 23.exd6 Bxf1 24.fxe7 Dxe7 25.Kxf1 Dxh4 endar ekkert ósvipað og hjá Hilmi í gær, tvö peð og hrókur fyrir tvo létta…nema hér standa öll spjót að hvíta kóngnum í ofanálag. Hannes hélt vel á taumunum og kláraði dæmið.

Hannes nú hálfum vinningi á eftir toppnum!

 

IM Dagur Ragnarsson (3½) – WGM Lenka Ptácníková (0)

Dagur missti hér af stóru tækifæri á að ná að blanda sér almennilega í toppbaráttuna. Dagur fékk fína stöðu og fór í vel heppnaðar taktískar aðgerðir. Eftir fína taflmennsku kom skrýtinn leikur hjá Degi.

Hér kom 24.Rh3? en hvítur stendur hartnær til vinnings eftir 24.Rf7+ og svo Bd5 í kjölfarið og svartur getur lítið hreyft, Dc7 í kortunum og fleira. Eftir gerðan leik vænkaðist hagur Lenku, Dagur þurfti að einfalda niður í jafntefli sem var óumflýjanlegt í mislitu biskupendatafli. Nöguð handarbök framundan hjá Degi sem var í ágætis færi.

Lenka tók sénsinn þegar hann gafst og náði fyrsta jafnteflinu á mótinu eftir erfiða byrjun

 

CM Björn Hólm Birkisson (1) – FM Bárður Örn Birkisson (1)

Hér væri auðvelt að rita að þetta jafntefli fari ekki í sögubækurnar! Það gerir það reyndar ekki fyrir skemmtangildi en þetta er í fyrsta skipti sem tvíburar mætast í landsliðsflokki. Skiptur hlutur ekki óvæntur.

 

6. umferð – úrslit

FM Örn Leó Jóhannsson – GM Hannes Hlífar Stefánsson 0–1
GM Guðmundur Kjartansson – IM Björn Þorfinnsson ½–½
GM Vignir Vatnar Stefánsson – IM Hilmir Freyr Heimisson 1–0
IM Dagur Ragnarsson – WGM Lenka Ptácníková ½–½
CM Björn Hólm Birkisson – FM Bárður Örn Birkisson ½–½

Staðan eftir 6 umferðir

GM Vignir Vatnar Stefánsson – 5 vinningar
IM Hilmir Freyr Heimisson – 5 vinningar
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 4,5 vinningar
GM Guðmundur Kjartansson – 4 vinningar
IM Dagur Ragnarsson – 4 vinningar
IM Björn Þorfinnsson – 3 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 1,5 vinningur
CM Björn Hólm Birkisson – 1,5 vinningur
FM Örn Leó Jóhannsson – 1 vinningur
WGM Lenka Ptácníková – 0,5 vinningur

Toppurinn orðinn þéttur, Vignir og Hilmir jafnir og Hannes hálfum vinningi á eftir

7. umferð tefld fimmtudaginn 7. maí kl. 15:00

FM Bárður Örn Birkisson – FM Örn Leó Jóhannsson
WGM Lenka Ptácníková – CM Björn Hólm Birkisson
IM Hilmir Freyr Heimisson – IM Dagur Ragnarsson
IM Björn Þorfinnsson – GM Vignir Vatnar Stefánsson
GM Hannes Hlífar Stefánsson – GM Guðmundur Kjartansson

Mikilvægar skákir á morgun, Vignir mætir Birni Þorfinns með svörtu en Hilmir hefur hvítt gegn Degi. Á pappírnum á Hilmir „léttara“ prógram eftir. Hannes og Guðmundur mætast svo í stórmeistaraslag.

Skákáhugamenn velkomnir í Miðgarð umferðin hefst 15:00 útsendingar skáka hafa 15 mínútna seinkun á Lichess.

Óli og Birna mættu á skákstað og nældu sér í eintak af tímaritinu Skák

Samantekt frá fimmta keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs 

Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)

Íslandsmótið í skák 2026

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

 

- Auglýsing -