Staðan á toppnum breyttist lítið í sjöundu umferð Íslandsmótsins í skák sem tefld var í dag  í Miðgarði í Garðabæ. Íslandsmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson vann sína skák og hið sama gerði Hilmir Freyr Heimisson. Hannes Hlífar Stefánsson lagði Guðmund Kjartansson í skrautlegri skák en heilt yfir var taflmennskan í umferðinni með slappara móti en þrjár skákir töpuðust í minna en 21 leik!

Rennum yfir gang mála í þessari umferð:

IM Björn Þorfinnsson (3) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (5)

„Moments before disaster“ Björn á leikinn gegn Vigni snemma tafls.

Björn fór aftur í heimahagana í byrjanavali og tefldi gamla góða „pýramídakerfið“ sem hefur gefist honum vel í hraðskák. Björn hefur verið duglegur að prófa nýjar byrjanir á mótinu en ákvað núna að ögra undirbúningsteyminu Vignir/Birkir Ísak og sjá hvað þeir myndu kokka upp á mótinu honum…Vignir eyddi meiri tíma í byrjuninni þannig að ef til vill var Björn klárari í bátana í þessari línu.

Björn var hér kominn með yfir hálftíma í tímaforskot og ofpeppaðist kannski aðeins og í stað þess að vera skynsamur og nota tímann var hann tiltölulega fljótur að leika 12.Rxd4?? sem er hartnær tapað á hvítan. 12.cxd4 eða 12.Dxd4 gefur í báðum tilvikum stöðu sem er áfram í dýnamísku jafnvægi.

Vigni var skemmt eftir 12.Rxd4…annaðhvort var hann að lenda í súper undirbúningi eða hvítur var að leika af sér skákinni.

Refsingin var ekki flókin, 12…e5 og 13.Rb5 Dc6 og á daginn kemur að riddarinn á b5 er reitalaus með öllu um leið og svartur setur á hann. Bjössi reyndi aðeins að grugga í vatninu en í 17. leik var riddarinn einfaldlega að falla og taflið gjörtapað, Björn gaf.

Slæmur dagur hjá Birni sem hafði fyrr um daginn fengið hrós fyrir skemmtilega taflmennsku…það virðist hafa virkað sem jinx á skák dagsins!

IM Hilmir Freyr Heimisson (5) – IM Dagur Ragnarsson (4)

Mikilvæg skák fyrir Hilmi sem er í dauðafæri á að ná sér í sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Gaman hefur verið að fylgjast með Vignir og Hilmi á þessu móti, báðir á köflum með skemmtilegar og ferskar byrjanahugmyndir.

8.Dd3!? hér er leikur sem er ekki algengur og gefur aðeins öðruvísi vinkil á stöðuna. Í ýmsum stöðum er drottningin tilbúin að sveifla sér beint á kóngsvænginn ef til átaka kemur þar. Dagur tefldi byrjunina hratt en áttaði sig kannski ekki nógu snemma á hættum stöðunnar.

Hilmir hefur teflt hraustlega á mótinu

Hér kom 11…g6? sem gefur hvítum stóran plús en það segir kannski sitt að tölvan telur 11…c4 vera besta leikinn á svart! Svartur er í smá klípu!

Í framhaldinu byggði Hilmir upp stórhættulega sókn og kláraði svo með stæl eftir 20…e5?

Dagur lagði niður vopnin eftir 21.Hxg6! stórglæsileg lokaflétta þar sem hvítur fórnar tveimur hrókum og mátar. Til dæmis 21…fxg6 22.Hh7+! Rxh7 23.Dxd7+ Kf6 24.Rxh7#

Stórt fyrir Hilmi sem er áfram efstur með Vigni.

GM Hannes Hlífar Stefánsson (4½) – GM Guðmundur Kjartansson (4)

Tefldur var spænskur leikur hjá stórmeisturunum. Guðmundur fékk ívið betra tafl með biskupaparið en miðtaflið virtist fjara út í jafnt tafl. Guðmundur sá færi á taktík

35…Bxf2+ er fínasti leikur en staðan ætti enn að vera í jafnvægi. Áfram tefldist 36.Kf1 Dc5 37.Dd5 De3

Gummi virtist standa til vinnings eftir afleik Hannesar

Hér má hvítur drepa á f7, 38.Hxf7 og eftir 38…Kh6 leika 39.Be2 og staðan jafnteflisleg með mislitu biskupana og opnar kóngsstöður. Hannes lék af sér 38.Dxe5+? og fékk tapað tafl, Guðmundur komst í gegn á svörtu reitunum og tefldi framhaldið vel fór mest í -7,5 í tölvunum og stóð til vinnings. Eftir röð ónákvæmra leikja var Hannes skyndilega búinn að forðast liðstap eða mát og „back in the game“ en staðan enn jafnteflisleg.

Í endataflinu fór svarti kóngurinn í fýluferð á kóngsvænginn og reyndist of fjarri átakasvæðum á e-línunni. Hannes vann…í raun ótrúlegan sigur!

WGM Lenka Ptácníková (½) CM Björn Hólm Birkisson (1½)

Lenka tapaði í 17 leikjum gegn Birni Hólm eins og Björn Þorfinns gegn Vigni. Ekki góður dagur hjá Lenku sem braut of mörg byrjanalögmál og Björn gekk á lagið af krafti.

FM Bárður Örn Birkisson (1½) – FM Örn Leó Jóhannsson (1)

Jafntefli varð í botnbaráttuslag Bárðar og Arnar Leó. Eina skákin í umferðinni þar sem annar aðilinn lék ekki skelfilega af sér!!

7. umferð – úrslit

FM Bárður Örn Birkisson – FM Örn Leó Jóhannsson ½–½
WGM Lenka Ptácníková – CM Björn Hólm Birkisson 0–1
IM Hilmir Freyr Heimisson – IM Dagur Ragnarsson 1–0
IM Björn Þorfinnsson – GM Vignir Vatnar Stefánsson 0–1
GM Hannes Hlífar Stefánsson – GM Guðmundur Kjartansson 1–0

Úrslitin sjálf í umferðinni koma kannski lítið á óvart en taflmennskan gerði það. Eins og áður sagði þrjár skákir að tapast í undir 21 leik og tvær skákir þar sem hvítu mennirnir duga ekki samtals í meira en 34 leiki! Hannes hefur svo væntanlega ekki unnið margar skákir þar sem hann er -7.5!

Staðan eftir 7 umferðir

GM Vignir Vatnar Stefánsson – 6 vinningar
IM Hilmir Freyr Heimisson – 6 vinningar
GM Hannes Hlífar Stefánsson – 5,5 vinningar
IM Dagur Ragnarsson – 4 vinningar
GM Guðmundur Kjartansson – 4 vinningar
IM Björn Þorfinnsson – 3 vinningar
CM Björn Hólm Birkisson – 2,5 vinningar
FM Bárður Örn Birkisson – 2 vinningar
FM Örn Leó Jóhannsson – 1,5 vinningur
WGM Lenka Ptácníková – 0,5 vinningur

Sama staða og fyrir síðustu umferð á toppnum, Vignir og Hilmir jafnir og Hannes hálfum vinningi á eftir.

Þessi berjast um titilinn…nær Hannes að blanda sér í baráttuna?

8. umferð tefld föstudaginn 8. maí kl. 15:00

FM Örn Leó Jóhannsson – GM Guðmundur Kjartansson
GM Vignir Vatnar Stefánsson – GM Hannes Hlífar Stefánsson
IM Dagur Ragnarsson – IM Björn Þorfinnsson
CM Björn Hólm Birkisson – IM Hilmir Freyr Heimisson
FM Bárður Örn Birkisson – WGM Lenka Ptácníková

Hilmir á léttari viðureign á pappírnum aftur, Vignir þarf helst að vinna gegn Hannesi…eitthvað sem honum hefur ekki tekist í kappskák ennþá! Sama hvernig fer hjá Vigni og Hannesi munu úrslit mótsins alltaf ráðast í lokaumferðinni og líkur á bráðabanaeinvígi einhverjar!

Skákáhugamenn velkomnir í Miðgarð umferðin hefst 15:00 útsendingar skáka hafa 15 mínútna seinkun á Lichess.

Samantekt frá sjöunda keppnisdegi í umsjón FM Ingvars Þórs (væntanleg síðar í kvöld)

Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)

Íslandsmótið í skák 2026

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

 

- Auglýsing -