Lokaumferð TePe Sigeman-mótsins fór fram í Malmö í dag og lauk mótinu með dramatískum hætti. Magnus Carlsen vann hinn 14 ára Yağız Kaan Erdogmus („Músin“) í sannkölluðum kynslóðaslag og tryggði sér þar með efsta sætið ásamt Arjun Erigaisi. Norðmaðurinn hafði svo betur í bráðabana gegn Indverjanum og stóð að lokum uppi sem sigurvegari mótsins.

Mikil athygli beindist að viðureign Carlsens og Erdogmus í lokaumferðinni. Tyrkneski táningurinn hafði farið á kostum á mótinu og leitt það um tíma, en stigahæsti skákmaður heims reyndist of sterkur að þessu sinni og notaði reynslu sína í endatöflum til að svíða Tyrkjann.

Lengi vel virtist stefna í jafntefli en Carlsen treysti á kóngsbiskup sinn í endatafli gegn riddara með peð á báðum vængjum – endatöfl sem Bobby Fischer var þekktur fyrir að ganga vel í!

Mistökin komu ekki fyrr en seint. 50…Ke7? virtist vera tapleikurinn en 50…f4 eða 50…Rg7 voru í lagi. Mögulega hefur Erdogmus misst af svari Carlsen hér eftir 53…b5

54.g7! tryggði að hvítur nær stjórn á f-peðinu og kemur eigin peðum áfram.

Ótrúleg seigla hjá Carlsen sem hækkar meira að segja um 1 elóstig og er sem fyrr langstigahæsti skákmaður heims í kappskák!

Á sama tíma gerði Arjun Erigaisi jafntefli við Andy Woodward, sömu úrslit og í hinum skákunum tveimur. Það dugði Indverjanum til að enda einnig með 5 vinninga af 7 mögulegum og þurfti því að grípa til bráðabana til að skera úr um sigurvegara mótsins.

Í hraðskákunum hafði Carlsen betur 2-1 og vann þar með TePe Sigeman-mótið 2026. Norðmaðurinn sýndi enn á ný styrk sinn þegar mest lá við og svaraði vel eftir tapið gegn Jorden van Foreest fyrr á mótinu.

Úrslitaskákina kláraði Carlsen með einfaldri fléttu en tímahrak og staða Erigaisi hafði þá hrakað hratt.

36…Rxf3+ og Carlsen vann aukakeppnina.

Lokastaðan:

  • GM Magnus Carlsen – 5 vinningar (+ sigur í bráðabana)
  • GM Arjun Erigaisi – 5 vinningar
  • GM Yağız Kaan Erdogmus – 4 vinningar
  • GM Nodirbek Abdusattorov – 4 vinningar
  • GM Jorden van Foreest – 3,5 vinningar
  • GM Andy Woodward – 3 vinningar
  • GM Nils Grandelius – 2 vinningar
  • GM Zhu Jiner – 1,5 vinningar

TePe Sigeman-mótið vakti mikla athygli í ár, ekki síst vegna þátttöku Magnus Carlsen og frammistöðu hins unga Erdogmus sem staðfesti enn frekar að hann er einn áhugaverðasti ungi skákmaður heims um þessar mundir.

Um mótið:

Tepe Sigeman var sterkt mót sem haldið var í Svíþjóð og hafði vakið athygli fyrir skemmtilegan keppendalista í gegnum tíðina. Sérstaka athygli vakti þátttaka Magnus Carlsen í ár. Óstaðfestar heimildir hermdu að Carlsen hefði tekið þátt þar sem golfvellir í nánd við mótsstað væru með besta móti!

Umhugsunartíminn var 90 mínútur fyrir fyrstu 40 leikina, síðan 30 mínútur til loka skákar, með 30 sekúndna viðbót frá fyrsta leik, og samkvæmt svokölluðum Malmö-reglum voru jafnteflistilboð ekki leyfð fyrir 40. leik.

Keppendahópurinn var glæsilegur: Magnus Carlsen, Nodirbek Abdusattorov, Arjun Erigaisi, Jorden van Foreest, Yağız Kaan Erdoğmuş, Nils Grandelius, Andy Woodward og Jiner Zhu. Þarna mættust reyndir stórmeistarar og nokkrir af áhugaverðustu ungu skákmönnum heims, flestir frumlegir og hvassir skákmenn.

- Auglýsing -