Það má heldur betur segja að umferð dagsins sé mikilvæg og getur ráð því hverjir verða í baráttuni til loka. Sex efstu menn mótsins mætast innbyrðis.

Sjöunda umferð Íslandsmótið í skák hefst kl. 15 í dag í Miðgarði og þá mætast:

Í dag mætast:

  • IM Hilmir Freyr Heimisson (5) – IM Dagur Ragnarsson (4)
  • IM Björn Þorfinnsson (3) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (5)
  • GM Hannes Hlífar Stefánsson (4½) – GM Guðmundur Kjartansson (4)
  • WGM Lenka Ptácníková (½) CM Björn Hólm Birkisson (1½)
  • FM Bárður Örn Birkisson (1½) – FM Örn Leó Jóhannsson (1)

Samantekt frá 6. umferð í gær í umsjón FM Ingvars Þórs

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, dagana 1.-9. maí, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

- Auglýsing -