Það stefnir í gríðarlega spennandi lokaumferðir Íslandsmótsins í skák. Þrír keppendur berjast um titilinn. Hilmir Freyr Heimisson og Vignir Vatnar Stefánsson eru efstir og Hannes Hlífar Stefánsson hefur hálfum vinningi minna. Aðrir hafa ekki tölfræðilega möguleika á titlinum.

Umferðin í dag hefst kl. 15 en rétt er að minna á það að lokaumferðin hefst kl. 11.

Umferð dagins

  • GM Vignir Vatnar Stefánsson (6) – GM Hannes Hlífar Stefánsson (5½)
  • CM Björn Hólm Birkisson (2½) – IM Hilmir Freyr Heimisson (6)
  • IM Dagur Ragnarsson (4) – IM Björn Þorfinnsson (3)
  • FM Örn Leó Jóhannsson (1½) – GM Guðmundur Kjartansson (4)
  • FM Bárður Örn Birkisson (2) – WGM Lenka Ptácníková (½)

Samantekt frá 7. umferð í gær í umsjón FM Ingvars Þórs

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, dagana 1.-9. maí, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

Um mótið:

Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.

Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.

Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.

- Auglýsing -