Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson tryggði sér rétt í þessu sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil í skák þegar hann lagði Bárð Örn Birkison að velli í lokaumferðinni. Hilmir kláraði mótið með 8 vinninga af 9 mögulegum, glæsilegur árangur. Fráfarandi Íslandsmeistari Vignir Vatnar Stefánsson lagði stórmeistarann Guðmund Kjartansson að velli en það dugði ekki til. Hannes Hlífar tók þriðja sætið eftir stutt jafntefli við Dag Ragnarsson.
Lokaumferðin:
GM Hannes Hlífar Stefánsson (6) – IM Dagur Ragnarsson (5)
Hannes átti fræðilega möguleika á titlinum, hann þurfti að treysta á tap Hilmis og að Vigni ynni ekki. Hannes hafði greinilega enga trú á því þó að á tímabili hafði það akkúrat verið sviðsmyndin. Furðuleg ákvörðun að bíða allavega ekki átekta og sjá hvernig hinar skákinar myndu þróast enda var staðan þannig á tímabili að það hefði orðið þriggja manna aukakeppni.
IM Hilmir Freyr Heimisson (7) – FM Bárður Örn Birkisson (3)
Hilmir mætti Bárði í lokaumferðinni og snemma tafls virtist Bárður ætla að eyðileggja partýið fyrir Hilmi. Bárður tefldi vel, fékk betra tafl og stefndi jafnvel í að Bárður væri að vinna þessa skák og þyrfti að treysta á að Vigni myndi ekki vinna.
Smátt og smátt náði Hilmir vopnum sínum í vörninnin og staðan meira og minna komin í dýnamískt jafnvægi þegar Bárður lék skákinni af sér.
29…Ka7?? var ótrúlegur afleikur. Kóngurinn tekur a7 reitinn af riddaranum á b5 sem er reitalaus eftir 30.c4! sem tryggir Hilmi titilinn í ár!
GM Guðmundur Kjartansson (5) – GM Vignir Vatnar Stefánsson (6½)
Vignir gerði sitt og lagði Guðmund að velli af miklu harðfylgi en það dugði ekki til að þessu sinni. Ótrúlegt hjá Vigni sem fær hér 7.5 vinning af 9 og lendir í 2. sæti og lenti í því sama á Íslandsmótinu í hraðskák þar sem hann fékk 11 vinninga af 13 en lenti í bæði skipti á ótrúlegri stuði hjá andstæðingum sínum.
IM Björn Þorfinnsson (3) – CM Björn Hólm Birkisson (2½)
Björn Þorfinnsson má prísa sig sælan með jafntefli hér eftir dapra taflmennsku. Björn Hólm á móti nagar sig í handarbökin að vinna ekki endatafl tveimur peðum yfir.
WGM Lenka Ptácníková (½) – FM Örn Leó Jóhannsson (1½)
Lenka og Örn Leó skildu jöfn í lengstu skák umferðarinnar og síðustu skákinni til að klárast á Íslandsmótinu 2026.
9. umferð – úrslit
WGM Lenka Ptáčníková – FM Örn Leó Jóhannsson ½–½
IM Hilmir Freyr Heimisson – FM Bárður Örn Birkisson 1–0
IM Björn Þorfinnsson – CM Björn Holm Birkisson ½–½
GM Hannes Stefánsson – IM Dagur Ragnarsson ½–½
GM Guðmundur Kjartansson – GM Vignir Vatnar Stefánsson 0–1
Lokastaðan
- IM Hilmir Freyr Heimisson 8 vinningar
- GM Vignir Vatnar Stefánsson 7½ vinning
- GM Hannes Stefánsson 6½ vinning
- IM Dagur Ragnarsson 5½ vinning
- GM Guðmundur Kjartansson 5 vinningar
- IM Björn Þorfinnsson 3½ vinning
- CM Björn Holm Birkisson 3 vinningar
- 8. FM Bárður Örn Birkisson 3 vinningar
- FM Örn Leó Jóhannsson 2 vinningar
- WGM Lenka Ptáčníková 1 vinning
Glæsilegur sigur hjá Hilmi sem fær 8 vinninga af 9 mögulegum. Ótrúlegt að það dugi ekki í stórmeistaraáfanga en því miður voru meðalstig mótsins ekki nógu há til þess. Vignir Vatnar fær 7,5 vinning sem venjulega hefði dugað til en gerði það ekki í ár.
Lokasamantekt í umsjón FM Ingvars Þór er mögulega væntanleg.
- Mótið á Chess-Results
- Beinar útsendingar á Lichess
Myndaalbúm á Flickr (notið örvar til að fletta myndum!)
Um mótið:
Alls taka tíu keppendur þátt, þar af þrír stórmeistarar. Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson telst líklegastur til sigurs, en hinir tveir stórmeistararnir, Hannes Hlífar Stefánsson (þrettánfaldur Íslandsmeistari) og Guðmundur Kjartansson (þrefaldur Íslandsmeistari), eru taldir veita honum harða keppni. Athyglisvert er að Vignir mætir þeim báðum í síðustu tveimur umferðunum. Þá gætu aðrir keppendur einnig komið á óvart og blandað sér í toppbaráttuna.
Einnig vekur athygli að tvíburabræðurnir Bárður Örn og Björn Hólm Birkisson tefla báðir í mótinu – slíkt hefur ekki gerst áður á Íslandsmótinu, þó bræður og jafnvel feðgar og hjón hafi áður teflt saman.
Tefldar verða níu umferðir, þar sem teflt er daglega kl. 15, nema í lokaumferðinni 9. maí sem hefst kl. 11. Komi til aukakeppni verður hún tefld strax að lokinni lokaumferð.















