Skákfélag Laufásborgar sendi lið til Evrópumeistaramóts í skólaskák sem haldið var í Trogir í Króatíu dagana 26. apríl til 6. maí 2026.

Árangurinn var frábær. Emilía Karen Arnarsdóttir, nemandi í leikskóla Laufásborgar, vann silfurverðlaun í stúlknaflokki U7.

Í sama aldursflokki drengja fengu tveir keppendur Skákfélagsins verðlaun:

  • Finnur Árnason – silfur
  • Lúkas Fells Lövenholdt – brons

17 börn frá Skákfélagi Laufásborgar tóku þátt í mótinu í ýmsum aldursflokkum, frá U7 upp í U17.

Leikskóli Laufásborg hefur komið fram á alþjóðlegum vettvangi í skák síðan árið 2018, meðal annars á Heimsmeistaramóti skólaskák í Durrës í Albaníu.

Skákfélag Laufásborgar hlaut sérstaka viðurkenningu frá Króatíska skáksambandinu fyrir „Outstanding team spirit and dedication to chess“. Viðurkenningin var afhent Omari Salama fyrir hönd félagsins af forseta skáksambandsins, Branimir Jukic.

Kennarar í ferðinni voru Jensína Edda Hermannsdóttir og Askur Jóhannsson, skákkennari.

Í gegnum síðustu 20 árin hafa tugir skáksnillinga komið upp úr röðum Skákfélags Laufásborgar.


Myndatextar:

  • Emilía Karen er til hægri á myndinni.
  • Lúkas til vinstri og Finnur til hægri á annarri mynd.
  • Omar Salama tekur við viðurkenningarskjalinu fyrir hönd Skákfélags Laufásborgar frá forseta Króatíska skáksambandsins, Branimir Jukic.
  • Seinasta myndin er tekin á síðustu æfingu á kaffihúsi í Reykjavík fyrir EM.

Tengill á Facebook frá Króatíska skáksambandinu (úrslit og myndir): https://www.facebook.com/share/p/1CrM1ECoeo/

- Auglýsing -