Fjórði keppnisdagur fór fram í dag á Kronborg Open í Danmörku. Íslensku keppendurnir áttu rólegan dag en sjöunda og áttunda umferð voru tefldar í efstu flokkunum og fimmta og sjötta í neðri flokkum.
Teflt er stíft, tvær umferðir á dag að jafnaði. Einu skákirnar sem virðast vera beint af íslensku keppendunum eru hjá Degi Ragnarssyni í IM-grúppu. Dagur gerði tvö jafntefli í dag.
Í fyrri skákinni gerði Dagur jafntefli með svörtu í drottningarbragði. Hvítur hafði eitthvað betra tafl framan af en Dagur hélt jafnteflinu.
Seinni skák Dags endaði einnig með jafntefli og aftur þurfti hann að verja aðeins verra tafl.
Dagur hefur 4,5 vinninga af 8 í sinni IM-grúppu.
Hilmir Freyr tók sama „daginn“ þriðja daginn í röð, sigur og tap og hefur 5 vinninga af 8 mögulegum.
Tvíburarnir Björn Hólm og Bárður Örn Birkissynir tefla í Masters-flokki 1 og áttu rólegan dag. Björn gerði jafntefli í annarri en tapaði hinni og hefur 3 vinning af 6 en Bárður gerði jafntefli í báðum og hefur 2,5 vinning.
Ólafur Guðmarsson vann eina og tapði hinni Masters-9 og hefur 2,5 vinning af 6 Jóhann Ragnarsson heldur áfram fínu gengi í Masters-10, vann og gerði jafntefli í dag og hefur 5 vinninga af 6.
Skákir beint:
Beinir tenglar á úrslitsíðu mótsins
- IM-grúppa (Dagur)
- WIM-grúppa (Hilmir)
- Masters-1 (Björn Hólm og Bárður Örn)
- Masters-9 (Ólafur Guðmarsson)
- Masters-10 (Jóhann)
Um mótið:
Kronborg „open“ er samansafn af lokuðum flokkum þar sem allir tefla við alla. Flokkarnir eru allt frá GM flokkum og IM flokkum niður í fjölda Masters-flokka og jafnvel niður í Basic-flokka. Í öllum flokkum fá skákmenn andstæðinga á sínu styrkleikabili!
IM Dagur Ragnarsson tekur þátt í IM-flokki, Íslandsmeistarinn Hilmir Freyr skráði sig seint til leiks og styrkir WIM-grúppuna, Birkissynir í Master 1 flokki, Ólafur Guðmarsson í Masters-9 og Jóhann Ragnarsson í Master 10. Tvær efstu grúppurnar af þessum hófu taflmennsku í dag en hinar á morgun!














