Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova hóf í gær taflmennsku á Evrópumóti kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu.
Í fyrstu umferð í gær mætti hún azersku landsliðskonunni Gunay Mammadzada (2374) og laut í dúk. Taflið var nokkuð jafnt framan af en ónákvæmni í 18. leik gerði miðtaflið erfitt.
18.Hac1?! gerði hvíta taflið erfitt eftir 18…Db7 og kaup á g2. Svarti riddarinn varð strax virkur eftir hopp inn á e4 reitinn og hvítareitaveikleikarnir í hvítu kóngsstöðunni erfiðir. 18.Re5 hefði verið nákvæmari leið þar sem hvítur er enn með veikleikana en eitthvað er í að svartur nái að virkja riddara sinn.
Svarta sóknin flæddi nokkuð vel eftir þessar vendingar og hvítu reitirnir kostuðu mátsókn og loks uppgjöf.
Í 2. umferð í dag gerði Lenka jafntefli við efnilega 15 ára heimastúlku frá Georgíu, Chkhartishvili. Lenka hafði svart og beitti Pirc-vörn og náði að komast í þægilegra endatafl en sú georgíska gerði engin mistök og engin gegnumbrot voru í boði, jafntefli niðurstaðan.
Þriðja umferð fer fram á morgun en teflt er á hverjum degi, enginn frídagur.

















