sjöunda umferð var tefld í dag á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Frídagur var á mótinu í gær en Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova tapaði aftur í hörku skák, nú gegn heimastelpunni Sofio Gvetadze (2311).
Lenka hafði hvítu mennina og upp koma fianchetto-Kóngsindverji. Miðtaflið nokkuð þungt af tilfærslum en dýnamíkin kraumaði undir yfirborðinu. Sú georgíska fórnaði manni til að opna kóngsstöðu hvíts.
28…Rxg4!? 29.hxg4 Dxg4 en hér varð Lenka slegin skákblindu. 30.fxg6?? leiðir þráðbeint til taps og hvítur hreinlega mát. Þess í stað er skákin áfram spennandi eftir 30.De3! sem valdar mikilvæga reiti kringum kónginn. Tölvumatið eilítið hagstæðara á hvítt en auðvitað mikið eftir af skákinni.
Áttunda umferð fer fram á morgun og þar mætir Lenka spænsku skákkonunni Carolina Damaso Tacoronte (1890). Lenka hefur 2,5 vinning að loknum umferðunum 7.
Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu. Teflt er á hverjum degi, utan eins frídags.

















