Magnús að tafli á ROpen - Mynd: TTJ

Aðalfundur Taflfélags Reykjavíkur var haldin þann 27.maí í félagsheimili Taflfélagsins.

Kosin var ný stjórn: Magnús Kristinsson (formaður), Una Strand Viðarsdóttir, Jon Olaf Fivelstad, Daði Ómarsson, Kristófer Orri Guðmundsson, Þorsteinn Magnússon, Ingvar Þór Jóhannesson.

Magnús verður nú formaður í fyrsta sinn en hefur verið gjaldkeri með hléum síðan 2006!

Varastjórn: Benedikt Þórisson, Helgi Áss Grétarsson, Gauti Páll Jónsson, Iðunn Helgadóttir.

Fjárhagsáætlun og félagsgjöld: Fjárhagsáætlun félagins var samþykkt á fundinum ásamt félagsgjaldi sem verður 7.000 kr

Lagabreytingar: Samþykktar voru allar þrjár lagabreytingar sem lagðar voru fyrir fundinn. (sjá fundargerð)

Fundargerð: Aðalfundur TR 27.maí 2026

- Auglýsing -