Það var aldeilis líf og fjör í Rimaskóla þegar hið árlega og vinsæla Sumarskákmót Fjölnis var haldið þar við frábærar aðstæður. Sannkölluð skákveisla, í salnum þar sem hátt í hundrað grunnskólakrakkar voru mættir til leiks og stefndu öll á góðan árangur og verðlaun. Já, ótrúlegt en satt og ábyggilega einstakt: Verðlaunin voru svo mörg, stór og smá, að allir þátttakendur fóru heim með vinnings glaðning. Hagkaup, Dominos, Boltamaðurinn og Bókabúð Grafarvogs gáfu öll verðlaunin.

Rótarý bikarana unnu þau Anh Hai Tran, sigurvegari mótsins og efstur í eldri flokk, Katrín Ósk Tómasdóttir sigurvegari í stúlknaflokki og Helgi Fannar Óðinsson sigurvegari í yngri flokk.

Stórmeistarinn og varaborgarfulltrúinn Helgi Áss Grétarsson tefldi klukkustundar fjöltefli í upphafi skákhátíðarinnar, Garðar Jónsson frá Rótarý – Grafarvogur afhenti verðlaunagripi sem klúbburinn hefur gefið öll rúm 20 árin af miklum rausnarskap og kærleika til skákdeildarinnar.
Heiðursgetur Sumarskákmótsins var að þessu sinni Jóhanna Björg Jóhannsdóttir forseti Skáksambandsins. Hún hefur alltaf sinnt barna-starfinu af áhuga og lagt áherslu á þátttöku stúlkna með hvatningu og þjálfun. Það gladdi hana mjög að sjá svona margar stelpur við taflborðið.
Engin skúffukaka í boði að þessu sinni (mikil vonbrigði sumra) en þess í stað var boðið upp á safa og Prins, í boði Ekrunnar.
Gauti Páll Jónsson öruggur og lausnamiðaður á tölvunni sem skákstjóri og mótsstjóri var Helgi Árnason formaður Skákdeildar Fjölnis. Hvílík hátíð – Skák er skemmtileg. Ljósmyndir: Tómas Tandri Jóhannsson.
Tómas Tandri setti fleiri áhugaverðar myndir á FB síðuna Íslenskir skákmenn og er mælt með að lesendur skoði þær.
- Auglýsing -



















