EM öldunga er hafið á Acqui Terme á Ítalíu. Íslensku keppendurnir eru fjórir talsins, allt stórmeistarar, þrír í 50+ flokki og einn í 65+ flokki.

Flokkur (50+)

Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).

Jóhann hafði svart gegn frönskum FIDE meistara Patrice Verdier. Upp kom modern-vörn, hrókað á sitt hvorum vængnum og tvísýnt miðtafl. Jóhann fann glæsilegan „fréttablaðsleik“ sem gerði út um taflið.

25…Rxe5!! setur hvítum óyfirstíganleg vandamál á löngu skálínunni. Hvíta staðan varð óverjanleg eftir 26.Dxd5 Rc4! Fínn sigur hjá Jóhanni.


Henrik þjarmaði stöðulega að sínum andstæðingi, enskum skákmanni og gaf engan grið í kóngsókninni í lokin. Öruggur sigur!

Þröstur vann einnig nokkuð þægilegan sigur gegn svissneskum skákmanni. Upp kom sikileyjarvörn en hvítur valdi mjög lélega útgáfu af mannsfórn á b5 fyrir þrjú peð og fékk Þröstur mjög þægilega sókn og endaði á að máta andstæðing sinn.

2. umferð fer fram á morgun, þar mætast:

GM Jóhann Hjartarson – IM Renzo Mantovani
FM Evgeny V. Melikhov – GM Henrik Danielsen
GM Þröstur Þórhallsson – IM Claude Adrian

Flokkur (65+)

Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.

Í fyrstu umferð hafði Margeir hvítt og mætti frönskum skákmanni. Margeir fékk betra tafl en missti aðeins tökin í miðtaflinu og þurfti að herða þau aftur. Sá franski hjálpaði til með því að skilja eftir veikt peð og gafst svo upp í endataflinu peði undir.

Í 2. umferð mætir Margeir sænskum skákmanni, Björn Jaderberg (2074).

 

- Auglýsing -