Í dag fór fram áttunda umferð á EM kvenna sem fram fer í Batumi í Georgíu. Íslandsmeistari kvenna, Lenka Ptacnikova átti náðugan dag og vann mjög auðveldan sigur gegn spænsku skákkonunni Carolina Damaso Tacoronte (1890). Taflmennska þeirrar spænsku var með allra versta móti og hlýtur hún að hafa hitt á slæman dag.
Lenka fékk strax yfirburðastöðu, arfaslakur stöðulegur leikur Bxc6? hjá hvítum og h3? í kjölfarið skildi svartan eftir með biskupaparið, betri liðsskipan og hvíta kónginn fastan á miðborðinu. Eftirleikurinn auðveldur og svo lék hvítur sig í mát í 2 í blálokin til að toppa þvæluna!
Lenka hefur nú 3,5 vinning að loknum átta umferðum. Næst á dagskrá er lettneska skákkonan Madara Golsta (2023) og hefur Lenka hvítt. Væntanlega verður verkefni morgundagsins erfiðara, það er næsta víst!
Alls taka 165 skákkonur þátt á mótinu og þeirra stigahæst er Stavroula Tsolakidou frá Grikklandi. Lenka er númer 102 í styrkleikaröðun á mótinu. Teflt er á hverjum degi, utan eins frídags.


















