Sjöunda umferð var tefld í dag á EM öldunga á Acqui Terme á Ítalíu fer hún ekki í sögubækurnar nema menn vilji skrá slæmu kaflana. Skemmst er frá því að segja að allar skákirnar þrjár hjá íslensku keppendunum í 50+ flokknum töpuðust og fjara vonir um titil nokkuð mikið við þau úrslit. Margeir Pétursson var sá eini sem náði úrslitum í dag en hann vann sína skák í 65+ flokknum.
Flokkur (50+)
Jóhann og Henrik höfðu 5 vinninga fyrir umferðina og Þröstur hafði 4 vinninga.
Jóhann hafði hvítt gegn Henrik og tefldi hvasst og ætlaði greinilega að máta Henrik! Henrik með svart beið í skotgröfunum, hirti peðin sem voru í boði og treysti á varnir sínar. Jóhann hafði fullar bætur fyrir peð vegna sterks svartreitabiskups…en ekki meira! Jóhann fann ekki leiðir til að bæta stöðuna og smám saman lifnaði svarta staðan við og Henrik náði að snúa taflinu sér í vil.
Þröstur hafði hvítt gegn finnsku landsliðskonunni Johanna Pasikangas. Þröstur fékk yfirburðatafl snemma eftir byrjunina og náði skemmtilegri fléttu í lokin. Fínn sigur sem stoppar erfiðan kafla Þrastar um miðbik mótsins
Henrik er nú efstur íslensku keppendanna með 6 vinninga en Jóhann hefur 5 vinninga ásamt Þresti.
9. umferð fer fram á morgun en pörun liggur ekki fyrir að svo stöddu.
Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) taka þátt í þessum flokki. Þeir eru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn taka þátt. Stigahæstur í flokknum er franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).
Flokkur (65+)
Margeir var með 5,5 af 7 fyrir umferðina og mætti efsta manni mótsins, Zurab Sturua með hvítu mönnunum. Margeir fékk ekkert með hvítu og sömdu þeir á þurra stöðu í 20. leik.
Margeir nú með 6 af 8 og á einhverja sénsa á verðlaunasæti ef lokaumferðin spilast vel út. Pörun liggur ekki fyrir.
Margeir Pétursson (2393) tekur þátt einn Íslendinga í þessum flokki. Hann er nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir eru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.
















