Lokaumferðina á EM öldunga var tefld í dag á Acqui Terme á Ítalíu. Fyrir umferðina voru einhverjar sviðsmyndir þar sem Evrópumeistaratitill hefði getað lent á íslenskum fána en á endanum datt hvorki titill né medalía. Allir íslensku keppendurnir enduðu í sjöunda eða skiptu sjöunda sæti.
Flokkur (50+)
Henrik var efstur íslensku keppendanna með 6 vinninga en Jóhann hafði 5 vinninga ásamt Þresti.
Henrik átti einhverja möguleika en snemma í byrjuninni var ljóst að hann hafði ekki úr miklu að moða og var í raun fljótt kominn með verra. Löng hrókun misheppnuð. Andstæðingur Henriks tefldi vel og tap staðreynd.
Jóhann lagði Mannion að velli og náði einnig 6 vinningum
Þröstur vann einnig sína skák og kláraði með 6 vinninga.
Íslendingarnir allir með 6 vinninga og enduðu í skiptu 7. sæti. Henrik efstur á oddastigum, þá Jóhann og svo Þröstur. Sigurvegari varð Jean Marc-Degraeve með 7 vinninga af 9.
Heilt yfir eilítil vonbrigði enda átti Ísland þrjá af fjórum stigahæstu mönnum mótsins.
Stórmeistararnir Jóhann Hjartarson (2467), Henrik Danielsen (2466) og Þröstur Þórhallsson (2397) tóku þátt í þessum flokki. Þeir voru nr. 2-4 í stigaröð keppenda en 88 skákmenn tóku þátt. Stigahæstur í flokknum var franski stórmeistarinn Jean-Marc Degrave (2494).
Flokkur (65+)
Margeir var með 6 af 8 og mætti spænskum IM. Eins og Henrik átti Margeir möguleika með heppilegum úrslitum á öðrum borðum. Margeir lagði allt undir, tefldi skemmtilega og fórnaði manni og hélt erfiðri pressu og tímapressu að andstæðingnum.
Stíflan brast og Margeir náði yfirburðastöðu en á ögurstundu missti hann tökin og varð að sætta sig við jafntefli. Sigur hefði þó aðeins dugað í 4. sætið útaf óhagstæðum úrslitum í öðrum skákum þegar kemur að oddastiga-útreikningum.
Lokaniðurstaðan 6,5 vinningar hjá Margeiri og 7. sætið. Zurab Sturua er Evrópumeistari með 7,5 vinning.
Margeir Pétursson (2393) var einn Íslendinga í þessum flokki. Hann var nr. 4 í stigaröð keppenda af 125 þátttakendum. Stigahæstir voru Zurab Sturua og Ljubomir Ftacnik.















