Breiðablik óskar eftir metnaðarfullum og skipulögðum yfirþjálfara til að leiða skákstarf félagsins frá næsta hausti. Skákdeild Breiðabliks hefur náð eftirtektarverðum árangri síðasta áratuginn og vill halda áfram að styrkja bæði barna og unglingastarf félagsins, og einnig afreksstarfið.
Lýsing á starfi
Yfirþjálfari ber ábyrgð á heildarskipulagi þjálfunar, aðkomu að þjálfun, stuðningi við þjálfara og góðum samskiptum við iðkendur, foreldra og stjórn deildarinnar. Starfið hentar einstaklingi með brennandi áhuga á skák, reynslu af þjálfun og hæfni til að byggja upp jákvætt og faglegt umhverfi. Gera má ráð fyrir að starfið geti talist á bilinu 30-50% starf, eftir sömdu umfangi.
Helstu verkefni
- Yfirumsjón með allri þjálfun skákdeildarinnar
- Mótun og eftirfylgni með þjálfunaráætlunum fyrir alla aldurshópa.
- Gæðastjórnun á þjálfun og æfingum.
- Þjálfun ákveðinna flokka
- Umsjón með eigin æfingahópum eftir samkomulagi.
- Kennsla, leiðsögn og einstaklingsmiðaður stuðningur við iðkendur.
- Stuðningur og leiðsögn til annarra þjálfara
- Fræðsla, ráðgjöf og samhæfing þjálfarateymis.
- Aðstoð við nýliðaþjálfara og stuðningur við faglegt starf.
- Upplýsingagjöf og samskipti
- Regluleg samskipti við foreldra og iðkendur um æfingar, mót og önnur málefni.
- Tengiliður milli þjálfara, iðkenda og stjórnar skákdeildar.
- Skipulag og aðstöðumál
- Umsjón með æfingaaðstöðu og skipulagi þegar færa þarf æfingar milli staða, t.d. úr Stúkunni í Smáraskóla.
- Samskipti við Breiðablik um aðstöðumál, búnað og önnur rekstrartengd atriði.
- Ýmis verkefni tengd daglegum rekstri skákdeildarinnar
- Aðstoð við skipulag móta, viðburða og kynningarstarfs.
- Þátttaka í stefnumótun og uppbyggingu skákstarfs félagsins.
Hæfniskröfur
- Reynsla af þjálfun eða kennslu í skák.
- Góð skipulagshæfni og frumkvæði.
- Hæfni í samskiptum og jákvæð nálgun í starfi.
- Færni til að vinna með börnum og ungmennum.
- Geta til að leiða teymi og styðja aðra þjálfara.
- Skilningur á starfi íþróttafélaga er kostur.
Við leitum að einstaklingi sem
- hefur brennandi áhuga á að efla skákstarf Breiðabliks,
- er lausnamiðaður og sveigjanlegur,
- getur unnið sjálfstætt og í teymi,
- og vill byggja upp öflugt og faglegt skáksamfélag innan félagsins.
Umsóknir og frekari upplýsingar
Umsóknarfrestur er til og með 30.júní
Hægt er að senda umsóknir og fyrirspurnir til stjórnar skákdeildar Breiðabliks. Frekari upplýsingar um starfið veitir stjórn skákdeildarinnar á netfangið skak@breidablik.is
Fyrir hönd skákdeildar Breiðabliks,
Kjartan Briem
Formaður skákdeildar Breiðabliks















