Æfingamót Skákskóla Íslands

    0
    3
    Hvenær:
    5. ágúst, 2026 @ 18:30 – 26. ágúst, 2026 @ 18:30
    2026-08-05T18:30:00+00:00
    2026-08-26T18:30:00+00:00
    Hvar:
    Skákskóli Íslands
    Faxafen 12
    108 Reykjavík
    Ísland
    Gjald:
    Ókeypis
    Tengiliður:
    Björn Ívar Karlsson
    6921655
    Æfingamót Skákskóla Íslands @ Skákskóli Íslands | Reykjavík | Reykjavíkurborg | Ísland

    Æfingamót Skákskóla Íslands fer fram dagana 5.-26. ágúst í húsnæði Skákskólans, Faxafeni 12.

    Tefldar verða sjö umferðir með tímamörkunum 90+30.
    Skákirnar verða reiknaðar til alþjóðlegra stiga.

    Umferðir fara fram á mánudögum og miðvikudögum í ágúst.

    Dagskrá:
    1. umferð – miðvikudaginn 5. ágúst kl. 18:30
    2. umferð – mánudaginn 10. ágúst kl. 18:30
    3. umferð – miðvikudaginn 12. ágúst kl. 18:30
    4. umferð – mánudaginn 17. ágúst kl. 18:30
    5. umferð – miðvikudaginn 19. ágúst kl. 18:30
    6. umferð – mánudaginn 24. ágúst kl. 18:30
    7. umferð – miðvikudaginn 26. ágúst kl. 18:30

    Mótið er opið öllum sem vilja hita upp fyrir haustið en er aðallega hugsað sem æfingamót fyrir ungmenni og annað landsliðsfólk í aðdraganda haustsins.

    Yfirsetur eru í boði í öllum umferðum og gefur hver yfirseta hálfan vinning.
    Keppendur eru því velkomnir í mótið jafnvel þó þeir geti ekki teflt meira en örfáar skákir.

    Hægt er að merkja við yfirsetur í skráningarformi eða tilkynna um þær fyrir lok umferðarinnar á undan með því að senda póst á bjorn@skaksamband.is

    Mótið verður flokkaskipt verði þátttaka nægilega góð.
    Þess verður gætt að ekki verði mikill getumunur á milli keppenda í viðureignum mótsins og að landsliðsfólk mætist ekki innbyrðis heldur tefli helst við gestakeppendur.

    Engin þátttökugjöld og engin verðlaun.

    SKRÁNING

    SKRÁÐIR KEPPENDUR

    - Auglýsing -