Kristján Örn Elíasson stjórnar vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær settist, Gauti Páll Jónsson, sagnfræðingur, ritstjóri Tímaritsins Skákar og fyrrverandi varamaður í stjórn SÍ niður við skákborðið í Skipholtinu.
Í kynningu um þáttinn segir:
Þeir Gauti Páll og Kristján Örn ræddu málefni líðandi stundar í skákinni bæði innanlands og utan. Það er margt framundan hér á landi, eins og skákmót í Bolungarvík, og á Akureyri, Raufarhöfn og Egilsstöðum, ásamt reglulegu mótahaldi á höfuðborgarsvæðinu. Þá barst talið einnig að landsliðum Íslands, rætt var um Íslendinga að tafli erlendis og góðan árangur Gauta Páls undanfarið í hraðskák, en hann er orðinn á meðal stigahæstu hraðskákmanna landsins.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -
















