Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson og alþjóðlegi meistarinn Björn Þorfinnsson unnu báðir sínar skákir í áttundu umferð á alþjóðlegu móti á Korsíku, Porticcio Open. Björn lagði alþjóðlegan meistara að velli en Guðmundur lagði 2100 skákmann. Lokaumferðin framundan á morgun.

Sigur Guðmundar var öruggur en hann náði í umframpeð með einföldum Bxh7-millileik.

Björn þurfti að hafa aðeins meira fyrir sigrinum gegn enskum andstæðingi sínum. Einhverjar flækjur á köflum og svartur hefði getað gert betur en Björn var eins og oft áður seigari í flækjunum og kláraði dæmið laglega eftir sóknarskák.
Íslensku titilhafaranir hafa nú báðir 5,5 vinning eftir 8 umferðir og gætu náð ágætis sæti með sigri í lokaumferðinni.
Alls taka rúmlega 50 skákmenn þátt í efsta flokknum sem Guðmundur og Björn eru skráðir til leiks í. Guðmundur er númer 9 í stigaröðinni en Björn númer 11.
















