Stigahæsti skákmaður Íslands og stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson hélt áfram taflmennsku á opna kanadíska í dag og kvöld en tefld var tvöföld umferð eins og í gær. VIgnir hafði 1,5 vinning af 2 eftir gærdaginn.
Í fyrstu umferð dagsins, þeirri þriðju á mótinu mætti Vignir stigalausum andstæðingi og vann nokkuð auðveldan sigur. Larry Yang með svart tók á sig óþarfa veikingar ásamt því að gefa eftir biskupaparið og veikingarnar voru það alvarlegar að Vignir náði að máta andstæðing sinn.
Í 4. umferð mætti Vignir alþjóðlega meistaranum Victor Plotkin (2279). Victor hefur líkt og David Cummings sem Vignir gerði jafntefli við í gær, teflt í nokkur skipti á Reykjavíkurskákmótinu! Victor tefldi Alapin-sikileyarvörn og var sáttur að skipta upp á liði. Vignir fékk örlítið frumkvæði í drottningarlausa miðtaflinu en Plotkin hélt áfram að halda sér fast.
Vignir reyndi allt hvað hann gat í endataflinu að búa til vinningsmöguleika en sá gamli náði að verjast öllum tilburðum Vignis og halda jafnteflinu.
Vignir hefur 3 vinninga að loknum fjórum umferðu. Mótið hægist nú og tefld er ein skák á dag.














