Sjö íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice.
Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.
Fjórða umferð fór fram í a-flokki í gær. Lenka vann Lettann Renars Muzis (2146), Adam gerði jafntefli við tékkneska FIDE-meistarann Jan Bartos (2156) en Jósef tapaði sinni skák.
Lenka hefur 1½ vinning en bræðurnir hafa 1 vinning.
Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theódór Eiríksson (1845).
Theódór vann í gær og hefur 2 vinninga en Jón Úlfur hefur 1 vinning.
Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539).
Hann hefur 1½ vinning.
Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757).
Þeir fygljast að og hafa 1½ vinning.
















