Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2540) og skákmeistarinn Óskar Víkingudur Davíðsson (2035) hófu taflmennsku í gær á alþjóðlegu móti í Kavala í Grikklandi. Báðir unnu þeir í fyrstu umferð! Óskar vann töluvert stigahærri andstæðing og Indverja í þokkabót sem er ekki sjálfgefið!

Í dag eru tefldar tvær umferðir. Í fyrri umferð dagsins eru andstæðingarnir stigahærri en í gær og þeir félagarnir fá báðir svart. Svo meiri áskorun á ferðinni.

Alls taka 148 keppendur frá 32 löndum í a-flokki þar sem þeir tefla. Vignir er nr. 3 í stigaröð keppenda en Óskar er nr. 128.

Beint streymi frá mótinu

Guðmundur Peng Sveinsson (1700) teflir í b-flokki (u2100) og vann einnig í fyrstu umferð. Töluvert stigahærri andstæðing.

 

- Auglýsing -