Skákmeistarinn og einn sterkasti hraðskákmaður landsins, Gauti Páll Jónsson (2103) tók þátt í alþjóðlegu kappskákmóti Poznan í Póllandi 20.-28. júlí. Hann tapaði í lokaumferðinni og hlaut 3 vinninga í umferðunum níu.
Gauti endaði í 25.-26. sæti.
Alls tóku 28 skákmenn þátt í flokki Gauta. Þar á meðal þrír stórmeistarar. Gauti var nr. 21 í stigaröð keppenda. Segja má að mótið hafi verið „gamli skólinn“. Níu umferðir á níu dögum.
- Auglýsing -

















