Sjö íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice.

Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.

Fimmta umferð fór fram í a-flokki í gær. Lenka vann Tékkann Wojciech (2175) en synirnir töpuðu báðir.

Lenka hefur 2 vinninga en bræðurnir hafa 1 vinning.

A-flokkur á Chess-Results

Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theódór Eiríksson (1845).

Jón Úlfur vann í gær en Theodór gerði jafntefli. Theodór hefur 2 vinninga en Jón Úlfur hefur 1½ vinning.

B-flokkur á Chess-Results

Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539).

Hann vann í gær og hefur 2½ vinning.

C-flokkur á Results

Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757).

Þeir fylgjast að sem fyrr og gerðu báðir jafntefli og hafa 2 vinninga.

U30+ á Chess-Results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -