Vigni var skemmt eftir 12.Rxd4...annaðhvort var hann að lenda í súper undirbúningi eða hvítur var að leika af sér skákinni.

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson (2540) hefur byrjað prýðilega á alþjóðlegu í Kavala á Grikklandi. Tvær umferðir voru tefldar í gær og hlaut Viggi 1½ vinning og hefur 2½ vinning eftir þrjár umferðir.

Skákmeistarinn Óskar Víkingur Davíðsson (2035) byrjar sterkt og gerði jafntefli við CM Michail Karamichos (2205) í seinni umferðinni í gær og hefur 1½ vinning.

Fjórða umferð hefst kl. 14 í dag og verður Vignir í beinni. Hann mætir stigaháum FIDE-meistara.

Alls taka 148 keppendur frá 32 löndum í a-flokki þar sem þeir tefla. Vignir er nr. 3 í stigaröð keppenda en Óskar er nr. 128.

Beint streymi frá mótinu (hefst kl. 14)

Guðmundur Peng Sveinsson (1700) teflir í b-flokki (u2100). Hann hefur 1 vinning eftir 3 umferðir.

 

- Auglýsing -