Átta íslenskir skákmenn sitja að tafli á Czech Open í Pardubice.

Mæðginin Jósef Omarsson (2064), Lenka Ptácníková (2063) og Adam Omarsson (2006) eru meðal 221 keppenda í a-flokki. Þau eru á milli 186-217 í stigaröð keppenda.

Sjöunda umferð fór fram í gær. Vel gekk í a-flokki í gær. Bræðurnir Adam og Jósef unnu báðir og Lenka gerði gott jafntefli við japanska FIDE-meistarann Sehyun Kvow (2280).

Lenka hefur 4 vinninga en bræðurnir hafa hafa 2½ vinning. Lenka hefur fengið 3½ vinning í síðustu fjórum umferðum. Hún hefur teflt upp fyrir sig í öllum umferðum mótsins.

Þess má geta að Lenka verður í beinni í umferð dagsins sem hefst kl. 13.  Lenka mætir stórmeistara kvenna með afar langt nafn frá Úkraínu.

Tengill á beinar útsendingar

 

Í b-flokki (1500-2200) tefla Jón Úlfur Hafþórsson (1935) og Theodór Eiríksson (1845).

Theodór vann í gær en Jón Úlfur tapaði á afmælisdaginn sinn. Theodór hefur 4 vinninga en Jón hefur 3 vinninga

B-flokkur á Chess-Results

Í c-flokki (u1800) teflir Eríkur Orri Guðmundsson (1539).

Eiríkur vann í gær og hefur 3½ vinning.

C-flokkur á Results

Í flokki 30+ tefla Sigurður Ingason (1783) og Óskar Haraldsson (1757).

Sigurður virðist vera orðinn sjóðheitur og vann aftur í gær en Óskar gerði jafntefli. Sigurður hefur 4 vinninga en Óskar hefur 3 vinninga.

U30+ á Chess-Results

Heimasíða mótsins

- Auglýsing -