Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.

Í fimmtu umferð sem fram fór í gær vann hann mongólíska alþjóðlega meistaranum Erdene Baasansuren (2406).

26. Re7+ var laglegur leikur sem tryggði mun betra tafl. Svartur lék svo skákinni af sér skömmu síðar.

Hilmir hefur 4½ vinning og er í 3.-9. sæti. Hann mætir pólska stórmeistaranum Jakub Kosakowski (2540) í sjöttu umferð sem fram fer í dag.

 

Skákin verður í beinni og hefst kl. kl. 14:30.

Hilmir í beinni útsendingu frá sjöttu umferð 

Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.

- Auglýsing -