Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.

Í sjöttu umferð sem fram fór í gær tapaði hann fyrir pólska stórmeistaranum Jakub Kosakowski (2540). Hilmir lék illa af sér í 31. leik og átti sér ekki viðreisnarvon eftir það og lagði niður vopn 26 leikjum síðar.

Hilmir lék 31…Rd7 sem var tapleikurinn.

Hilmir hefur 4½ vinning og er í 15.-40. sæti. Hann mætir kínverska alþjóðlega meistaranum Gong Sunle í sjöundu umferð í dag. Skákin verður í beinni og hefst kl. kl. 14:30.

Hilmir í beinni útsendingu frá sjöundu umferð 

Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.

- Auglýsing -