WFM Guðrún Fanney Briem (1816) situr þessa dagana að tefla í Maia í Portúgal. Hún tekur þar þátt í efsta flokki.
Guðrún Fanney er taplaus með svörtu á mótinu. Gerði sitt fjórða jafntefli með svörtu í gær í jafn mörgum skákum. Hún hefur hins vegar tapað öllum sínum þremur skákum með hvítu. Guðrún hefur því 2 vinninga að loknum 7 umferðum. Ritstjóri spáir því að Guðrún Fanney tapi ekki með hvítu í dag!
Alls taka 139 skákmenn frá 32 löndum í flokki (1800+) Guðrúnar og þar af fimm stórmeistarar. Guðrún er næststigalægst keppenda en hún er auðvitað mun betri en stigin gefa til kynna. Mótið fer fram 21.-29. ágúst. Ein umferð á dag. Gamli skólinn.
- Auglýsing -



















