Íslandsmeistarinn í skák, alþjóðlegi meistarinn, Hilmir Freyr Heimisson (2338) situr að tafli í Barcelona á Spáni dagana 21.-30. ágúst.

Hilmir vann mikinn baráttusigur á kínverska alþjóðlega meistaranum Gong Sunle (2438) í gær í hvorki meira né minna en 107 leikjum!

Hilmir náði betri stöðu en Kínverjinn fann varnarleið þar sem hann var manni undir en samt með jafnteflistöðu þar sem hornreiturinn er ósamlitur hvíta biskupnum. Kritíska augnablikið var eftir 85. leik hvíts.

Gong lék 85…Kf8??. Svartur varð að halda kóngnum á g7.  T.d. með því að leika 85…He1.  Nú fann hvítur skemmtilega leið til sigurs. 86. Kd6 He1 87. Hf3 He7 88. Hf4 Ha7

89. Bxf7!! því 89…Hxf7 er svarað með 90. Ke6!. Framhaldið gæti verið.

Hilmir hefur 5½ vinning og er í 7.-20. sæti. Hann mætir bandaríska stórmeistaranum viðkunnanlega Nico Chasin (2470) í áttundu umferð í dag. Skákin verður í beinni og hefst kl. 14:30.

Hilmir í beinni útsendingu frá áttundu umferð

Alls taka 359 skákmenn þátt frá 50 löndum og þar af 16 stórmeistarar. Hilmir er nr. 55 í stigaröð keppenda. Mótið fer fram 21.-30. ágúst. Tefldar eru 10 umferðir á jafnmörgum dögum. Gamli skólinn.

- Auglýsing -