Í tilefni af 100 ára afmæli Taflfélags Vestmannaeyja var blásið til afmælisskákmóts, 100 ára afmælisskákmót Vestmanneyingja var 8 umferða atskákmót þar sem þrír stórmeistarar mættu til leiks og mótið almennt þétt. Eftir harða baráttu var það stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson sem varð hlutskarpastur, líkt og á Íslandsmótinu í atskák fyrir skemmstu.
Í hálfleikshléi var Helgi Ólafsson gerður að heiðursfélaga Taflfélags Vestmannaeyja við þetta skemmtilega tilefni. Hér að neðan eru ræður Arnar og í kjölfarið Helga.
Snemma var ljóst að baráttan á mótinu yrði á milli stórmeistaranna þriggja. Björn Þorfinnsson og Örn Leó Jóhannsson áttu sína spretti að vanda en þegar upp úr kjörkössunum var talið hafði FIDE-meistarinn Þorsteinn Þorsteinsson líka komið skemmtilega á hlið!
Helgi Áss og Vignir fóru best af stað, gerðu innbyrðis jafntefli og voru komnir með vinningsforskot á næstu menn að loknum sex umferðum. Helgi Ólafsson gerði jafntefli gegn Helga Áss í sjöundu umferð og þarmeð tók Vignir hálfs vinnings forskot. Helgi Ólafsson hélt áfram að vera áhrifavaldur í lokaumferðinni, lagði Vigni að velli og náði með því þriðja sætinu en tryggði í sömu andrá Helga Áss sigurinn sem vann sína skák í lokaumferðinni.
Lokastaðan eftir 8 umferðir
- GM Helgi Áss Grétarsson (2373) – 7 vinningar (+13,9)
- GM Vignir Vatnar Stefánsson (2446) – 6½ vinningur (+4,9)
- GM Helgi Ólafsson (2496) – 6 vinningar (−4,7)
- FM Þorsteinn Þorsteinsson (2114) – 6 vinningar (+44,2)
- Gauti Páll Jónsson (2108) – 5½ vinningur (+18,6)
- FM Örn Leó Jóhannsson (2248) – 5½ vinningur (−14,2)
- IM Björn Þorfinnsson (2390) – 5 vinningar (−7,8)
- Stefán Steingrímur Bergsson (1992) – 5 vinningar (+16,6)
- Harald Björnsson (1878) – 5 vinningar (+14,6)
- Emil Sigurðarson (1846) – 5 vinningar (+19,8)

Helgi Áss Grétarsson varð því verðskuldaður sigurvegari mótsins með 7 vinninga af 8 mögulegum, hálfum vinningi á undan Vigni Vatnari Stefánssyni. Helgi Ólafsson og Þorsteinn Þorsteinsson komu næstir.
Glæsilegt mót og rétt að óska Taflfélagi Vestmannaeyja enn og aftur til hamingju með þennan skemmtilega áfanga!
















