Norðurlandamót skólasveita í skák hefst í dag í Helsingborg í Svíþjóð.

Tveir íslenskir skólar taka þátt á mótinu, Íslandsmeistararnir í Lindaskóla í eldri flokki (8.-10. bekk) og Langholtsskóla í yngri flokki (1.-7. bekk).

Lindaskóli (liðsstjóri: Björn Ívar Karlsson)
1. Birkir Hallmundarson
2. Örvar Hólm Brynjarsson
3. Sigurður Páll Guðnýjarson
4. Nökkvi Hólm Brynjarsson

Eldri flokkur á chess-results

Langholtsskóli (liðsstjóri: Gauti Páll Jónsson)
1. Pétur Úlfar Ernisson
2. Gunnar Þór Þórhallsson
3. Jakob Steinn Valdimarsson
4. Vilhelm Þór H. Hermansen

Yngri flokkur á chess-results

Tefldar verða fimm umferðir með tímamörkunum 90+30.

Dagskrá mótsins (á íslenskum tíma):

Föstudagur 11.09
17:15 – 1. umferð
Laugardagur 12.09
07:00 – 2. umferð
12:30 – 3. umferð
Sunnudagur 13.09
07:00 – 4. umferð
11:30 – 5. umferð
- Auglýsing -