Íslenska liðið lenti í grískum harmleik í 5. umferð á Ólympíuskákmótinu. Gengið fram að þessari umferð verið með besta móti en tapið í dag var alltof stórt, ½ – 3½ sem var ekki í takt við gang mála. Í kvennaflokki vannst „fullnaðarsigur“ 4-0 gegn Namibíu en mikið drama var í þeirri viðureign sem sveiflaðist úr mögulegu jafntefli í hreinsun á augabragði!

Fyrir umferðina var liðið í opna flokknum með 6 liðsstig og 13½ borðstig, hæst allra með 6 liðsstig. Í kvennaflokki var liðið með 4 liðsstig og 10 vinninga.

Toppbaráttan er farinn að harðan og í 5. umferðinni mættust stórþjóðir í fyrsta skipti. Bandaríkjamenn fengu Þjóðverja, Indverjar mættu Hollendingum, Úzbekar fengu Ungverja og Kínverjar mættu Armenum.

Opinn flokkur: Ísland – Grikkland

Erfitt verkefni hér, frasinn „þetta er ekkert Andorra, miklu harðara dæmi“ flaug af vörum einhverra fyrir og eftir verkefnið. Grikkland er 19. stigahæsta liðið og stigahærra á öllum borðum með sjóaða stórmeistara og nokkra ungra og hungraða í bland. Jóhann kom aftur inn í liðið fyrir Guðmund.

Borð Ísland stig Grikkland stig
1 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531 GM Nikolas Theodorou 2633
2 IM Hilmir Freyr Heimisson 2342 GM Dimitrios Mastrovasilis 2525
3 GM Jóhann Hjartarson 2461 GM Ioannis Papaioannou 2608
4 GM Hannes Hlífar Stefánsson 2425 GM Dimitris Alexakis 2533
Skák Jóhann gegn Papaioannou var fyrst til að klárast. Jóhann ákvað að tefla gegn Najdorf afbrigði Grikkjans en kom ekki að tómum kofanum þar. Sá gríski tefldi hratt og af miklu öryggi.
Liðsstjóri kvennaliðs gekk framhjá borðinu eftir 24…b5! hjá Papaioannou.

Ályktunin um að Jóhann væri hér í „djúpum skít“ var á rökum reist. Jóhann var gjörsamlega „í köðlunum“ og nánast mát á h-línunni en náði að loka búðinni og þegar hann náði d-peði svarts var jafnteflið tryggt! Mikil seigla hér hjá þeim gamla!
Ungu mennirnir, Vignir og Hilmir, hafa staðið sig vel en hittu ekki á nógu góðan dag í dag. Theodorou, stigahæsti skákmaður Grikkja, lagði Vigni að velli. Vignir gaf Grikkjanum líklega aðeins of góða útgáfu af broddgeltinum í þessari skák og lúrði Theo á svartreitabiskupnum sínum og beið eftir að holur mynduðust í hvítu stöðunni. Ein sem gæti orðið góð í reynslubankann hjá Vigni!
Hilmir tapaði sinni fyrstu skák, eins og Vignir. Hann hafði svart gegn Mastrovasilis og virtist hafa náð allri erfiðsvinnunni og komst í endatafl sem hefði átt að haldast. Öldungaráðið var á því að 35…b5? hafi veikt peðastöðu svarts of mikið og Grikkinn gekk á lagið.
Á fjórða borði tapaðist svo skák Hannesar. Tígul-peðastaðan á drottningarvæng var ekki að fara langt og hvítur hafði öll trompin í miðtaflinu og gat byggt taflið upp meira og minna að vild. Erfið staða að verjast í fyrir svartan og gekk vörnin ekki upp að þessu sinni.
Stórt tap niðurstaðan.

Úzbekar náðu ótrúlegum 4-0 sigri gegn Ungverjum sem sýnir að stórtöpin koma inn á milli hjá bestu þjóðunum! Þjóðverjar komu Bandaríkjamönnum á óvart og lögðu þá á að velli en Indverjar stöðu vaktina gegn Hollendingum og eru þessar þrjár þjóðir efstar og jafnar.

Ísland mætir Andorra í 6. umferð sem er síðasta umferð fyrir frídag. Stórviðureign Úzbeka og Indverja á morgun mun ná athygli skákheimsins en þarna gætu mögulega úrslit mótsins ráðist!

Kvennaflokkur: Ísland – Namibía

Ísland var stigahærra á öllum borðum og Hrund kom inn á fjórða borð í stað Iðunnar. Ísland hefur mætt Namibíu nokkrum sinnum áður og alltaf unnið nokkuð þægilegan sigur. Lið þeirra mætir þó sjáanlega stigahærra til leiks nú en oft áður sem sést kannski helst á því að við mætum þeim í 5. umferð en ekki þeirri fyrstu þannig að þær þurtu að vinna nokkrar viðureignir!

Borð Ísland stig Namibía stig
1 WGM Lenka Ptácníková 2082 Lutopu Khoa 1746
2 WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 1995 WCM Jamie-Nicole Beukes 1831
3 WFM Guðrún Fanney Briem 1865 Helvi Shuudifonya 1638
4 Hrund Hauksdóttir 1817 WCM Jolly Nepando 1626

Snemma virtist ekki stefna í spennandi viðureign. Guðrún byrjaði á því að slátra sínum andstæðingi í vel útfærðri skák.

Guðrún að tafli í Samarkand

2-0 var komið á töfluna skömmu síðar þegar Hrund fann góðan farveg fyrir biskuapar sitt og veitti Jolly Nepando sitt þriðja tap gegn íslenskri skákkonu á Ólympíumóti!

Staðan hér 2-0 og virtist stefna í íslenskan sigur þar sem aðeins vantaði eitt jafntefli til viðbótar. Hallgerður gerði þá sjaldséð mistök og lék af sér manni þegar virtist stefna í enn einn auðveldan sigur með minnihluta árás í caro-kann!

27…Bb4? virðist setja pressu á c3 peðið þar sem peðið er leppur. En er það? 28.cxb4 Hxc1 og Hallgerður vaknaði upp við vondan draum eftir 29.Bh4+ og staðan töpuð.

Hér fór liðsstjóri að stressast sjáanlega en vonaði að Lenka myndi lesa í spilin og bjóða jafntefli þegar 30. leikjum var náð í tvísýnnri stöðu þar sem andstæðingur hennar var mun stigalægri og hefði að öllum líkindum þáð boðið.

Þess í stað kom yfirsjón í 29. leik

29.Da4? og hvítur er í vandræðum þar sem eftir 29…Hxb2! 30.Rc4 fer hrókurinn aftur á b5, 30…Hb5! Lenka tók praktíska ákvörðun að gefa tvo menn fyrir hrók og vona það besta.

Hér voru báðar stöðurnar koltapaðar og stefndi í 2-2. Liðsstjórinn skrapp í göngutúr, kíkti á strákana og efstu borðin. Þegar til baka var komið virtist 2. borð Namibíu halmtri sleginn og Lenka var allt í einu skiptamun yfir.

37.Rc2?? skilaði skákinni til baka í jafntefli en skömmu síðar klúðraði hún skákinni í tap til að bæta gráu ofan á svart.

Hér er svartur með unnið eftir hvaða hróksleik sem er til að tryggja a7 riddaranum reit. 36…h6?? gerði taflið jafnt og eins á 2. borði var farið úr gráu í svart og tap örskömmu síðar.

Liðsstjóri með reynslu af yfir tugi móta af þessu tagi hefur aldrei séð annan eins viðsnúning…reyndar sá ég þetta ekki fyrr en eftir skákirnar en held mig við það! Ekki er vitað til þess að mútugreiðslur af neinu tagi hafi átt sér stað í þessum viðsnúningi en við gáfum liðsmönnum þó íslenskt súkkulaði fyrir skákirnar!

Skák Hallgerðar:

Skák Lenku:

Aðeins of stór sigur miðað við gang mála, en við tökum hann!

Pólverjar skákuðu Indverjum óvænt og sitja í toppsætinu með fullt hús ásamt Kazökum, Azerum og Kínverjum.

Ísland mætir Bosníu og hersegóvínu á morgun en ekki verður um fjöltefli að ræða. Bosnía stigahærri en liðið sér ákveðið færi að sækja og ná í fyrsta sigurinn gegn stigahærri þjóð.

Ólympíu Tenglar

- Auglýsing -