Sjötta umferð Ólympíuskákmótsins í Samarkand hófst núna kl. 10:00. Andstæðingar dagsins eru Andorra í opnum flokki og Bosnía-Hersegóvína í kvennaflokki. Hilmir Freyr Heimisson hvílir. Á morgun er hvíldardagur.

Í gær tapaði opna liðið stórt, ½–3½ gegn Grikklandi. Kvennaliðið vann Namibíu 4–0. Eftir fimm umferðir erru bæði liðin með sex stig.

Opinn flokkur: Andorra – Ísland

Ísland er stigahærra. Jóhann, Hannes og Guðmundur tefla með Vigni.

Borð Andorra stig Ísland stig
1 GM Óscar De La Riva Aguado 2428 GM Vignir Vatnar Stefánsson 2531
2 FM Serni Ribera Veganzones 2305 GM Jóhann Hjartarson 2461
3 FM Daniel Gómez Anadón 2193 GM Hannes Hlífar Stefánsson 2425
4 Esteve Mateu Guiu 2181 GM Guðmundur Kjartansson 2402

Vignir teflir svörtum gegn eina stórmeistara Andorra. Eftir tapið gegn Grikkjum er krafa um sigur!

Kvennaflokkur: Ísland – Bosnía-Hersegóvína

Guðrún að tafli í Samarkand

Bosnía er stigahærra á öllum borðum. Hrund hvílir; Iðunn teflir.

Borð Ísland stig Bosnía-Hersegóvína stig
1 WGM Lenka Ptácníková 2082 WFM Milana Babić 2196
2 WFM Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 1995 WFM Maša Babić 2147
3 WFM Guðrún Fanney Briem 1865 WFM Maša Maksimović 2087
4 WCM Iðunn Helgadóttir 1869 WFM Sara Jaćimović 2002

Lenka mætir Milönu Babić, Hallgerður Mašu Babić, Guðrún Mašu Maksimović (liðsstjóra Bosníu) og Iðunn Söru Jaćimović.

Hverjir eru efstir á mótinu?

Eftir fimm umferðir, með sex umferðir eftir (að hvíldardegi meðtöldum), er toppurinn svona:

Opinn flokkur – 10 liðsstig: Úsbekistan, Indland og Þýskaland.
9 liðsstig: Kína, Frakkland, Íran, Armenía og England.

Þar á eftir koma meðal annars Bandaríkin, Aserbaídsjan, Pólland, Holland og Úkraína með 8. Úsbekistan mætir Indlandi í dag, Kína mætir Þýskalandi. Það eru enn mörg lið sem geta blandast í medalíubarátto.

Kvennaflokkur – 10 liðsstig: Pólland, Kína, Kasakstan og Aserbaídsjan.
9 liðsstig: Bandaríkin og Úsbekistan.

Indland mætir Bandaríkjunum, Pólland mætir Kína. Tíu liðsstig af tíu mögulegum þýðir að enginn er enn öruggur; sex umferðir eru eftir.

Vefsíður til að fylgjast með

- Auglýsing -